Doddi litli fékk þrjá rétta þegar hann tippaði á enska boltanum um síðustu helgi.
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi í Reykjavík, fylgist vel með enska boltanum og hann sér um að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni.
Gísli Marteinn telur að Manchester City muni hafa betur gegn Manchester United í stórleik helgarinnar. Þá tippar hann á að sínir menn í Liverpool nái að leggja West Ham.
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi í Reykjavík, fylgist vel með enska boltanum og hann sér um að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni.
Gísli Marteinn telur að Manchester City muni hafa betur gegn Manchester United í stórleik helgarinnar. Þá tippar hann á að sínir menn í Liverpool nái að leggja West Ham.
Sunderland 0 - 1 Chelsea (15:00 á morgun)
Sunderland er í tómum vandræðum og Chelsea hlýtur að fara að vinna og ná í þrjú stig. Þeir eru með betri leikmenn.
Aston Villa 1 - 0 Stoke (15:00 á morgun)
Mér finnst Aston Villa liðið hafa verið vaxandi og það eru fínir leikmenn þarna. Þeir hafa átt í erfiðleikum með að skora en Benteke hefur verið að stíga upp og ég von á því að hann stangi inn eitt mark á lokamínútunum.
Southampton 3 - 2 Reading (15:00 á morgun)
Þetta eru lið sem hafa verið að spila sóknarbolta á meðan lítið hefur verið um varnir. Ég vona að minn maður, Liverpool maðurinn Lambert setji hann og Southampton nái þarna í þrjú stig á heimavelli.
Arsenal 1 - 1 WBA (15:00 á morgun)
Ég held að þetta verði 1-1 jafntefli. Arsenal er búið að vera í ruglinu en WBA hafa verið frábærir.
Swansea 2 - 0 Norwich (15:00 á morgun)
Ég held að Swansealona taki þetta 2-0. Ég var hrifinn af þeim í fyrra og Laudrup hefur haldið áfram með sömu heimspeki. Hann keypti skynsamlega í sumar og þessi Michu getur ekki hætt að skora.
Wigan 0 - 2 QPR (15:00 á morgun)
Harry Redknapp nær þarna í sinn fyrsta sigur á útivelli. Það er betri mannskapur hjá QPR en staðan í deildinni sýnir og Redknapp hefur fengið tíma til að koma sínum fingraförum á þetta. Ég hef líka smá hagsmuna að gæta því að ég er með Taarabt í draumaliðsleik og ég vona að hann setji tvö.
Manchester City 1 - 0 Manchester United (13:30 á sunnudag)
Ég kann ekki tölfræðina en mér finnst City hafa haft yfirhöndina í þessum Derby leikjum undanfarin ár. Þetta eru keppnismenn í liðinu hjá City en ekki einhverjir málaliðar og þó svo að Ferguson sé meiri stemnings þjálfari þá eru meiri gæði í City liðinu.
Everton 1 - 0 Tottenham (15:00 á sunnudag)
Everton eru ógeðslega sterkir á meðan Andre Villas-Boas er brothættur svo ég tippa á að Everton hafi þetta.
West Ham 1 - 2 Liverpool (16:00 á sunnudag)
Ég er Liverpool maður og spái mínum mönnum sigri. Suarez er í banni en Shelvey og Sterling skora. Ég vona að Lucas Leiva ýti Gerrard upp og hann fari að vakna. Hann er búinn að fara sofandi allt tímabilið en ef hann fær að vera ofar gæti hann lagt upp bæði mörkin.
Fulham 1 - 1 Newcastle (20:00 á mánudag)
Þetta eru tvö skemmtileg lið en þau geta bæði hrunið og fengið á sig helling af mörkum. Ég held að þetta verði skemmtilegur leikur en enginn bunki af mörkum.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)





