Gísli Marteinn Baldursson fékk fjóra rétta þegar hann spáði á leikina í enska boltanum um síðustu helgi.
Guðmundur Kristjánsson spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann skrifaði í vikunni undir samning hjá norska félaginu Start.
Þar sem Chelsea er í fríi um helgina vegna HM Félagsliða fékk Guðmundur að velja sér einnig einn auka leik úr ensku Championship deildinni.
Guðmundur Kristjánsson spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann skrifaði í vikunni undir samning hjá norska félaginu Start.
Þar sem Chelsea er í fríi um helgina vegna HM Félagsliða fékk Guðmundur að velja sér einnig einn auka leik úr ensku Championship deildinni.
Newcastle 1 - 3 Manchester City (12:45 á morgun)
Mínir menn hafa því miður ekki verið nógu sannfærandi undanfarið og ég hugsa að City vinni því miður. Tevez setur tvö og skilar mér góðum stigum sem fantasy fyrirliðinn minn!
Liverpool 2 - 1 Aston Villa (15:00 á morgun)
Suarez klárar þennan leik fyrir Liverpool þrátt fyrir að Villa nái að klóra í bakkann í uppbótartíma með marki frá Benteke.
Manchester United 3 - 1 Sunderland (15:00 á morgun)
Ég held að Sunderland nái að valda United vandræðum og komist yfir. Þeir eru þó einfaldlega ekki nógu góðir til að vinna þennan leik og tapa.
Norwich 3 - 2 Wigan (15:00 á morgun)
Ég hugsa að Norwich nái að fylgja eftir góðum sigri í síðasta leik með sigri í markaleik 3-2.
QPR 0 - 2 Fulham (15:00 á morgun)
Eftir að hafa tekið stig í síðustu þremur leikjum held ég að QPR tapi. Norðmennirnir Jón Árni Riise og Brede Hangeland hamra inn mörkum, annar með höfðinu en hinn með vinstri fæti. Megið giska hvor á hvaða mark
Stoke 2 - 1 Everton (15:00 á morgun)
Stoke eru búnir að vera á siglingu undanfarið og tiki-taka þrjú stig á heimavelli. Walters og Crouch skora og Fellaini fyrir Everton.
Tottenham 3 - 2 Swansea (13:30 á sunnudag)
Þessi leikur verður fjör frá fyrstu mínútu. Ég spái allavega einu rauðu spjaldi og 3-2 sigri Tottenham þar sem Michu heldur uppteknum hætti en Adebayor skorar sigurmarkið í blálokin.
WBA 4 - 1 West Ham (16:00 á sunnudag)
West Brom. taka West ham í kennslustund og vinna öruggan og þægilegan 4-1 sigur. Shane Long skorar þrennu og Kevin Nolan setur eitt gullfallegt
Reading 0 - 0 Arsenal (20:00 á mánudag)
Arsenal valda enn og aftur vonbrigðum þegar þeir ná bara einu stigi gegn Reading í markalausu jafntefli
Cardiff 3 - 0 Peterborough (15:00 á morgun)
Þetta verður leikur kattarins að músinni. Íslendingarnir í Cardiff sökkva Peterborough í öruggum sigri 3-0 þar sem Heiðar Helgu skorar 2 og Aron Einar laumar inn einu.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)



