Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 28. desember 2012 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Maggi Pé spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Magnús Vignir Pétursson
Magnús Vignir Pétursson
Mynd: Valdimar P. Magnússon
Hjörtur Júlíus Hjartarson, knattspyrnumaður og íþróttafréttamaður hjá Stöð 2, fékk fjóra rétta er hann spáði fyrir leiki helgarinnar í síðustu umferð.

Magnús Vignir Pétursson, fyrrum milliríkjadómari og eigandi knattspyrnuversluninnar Jóa útherja, spáir í leiki helgarinnar.

Magnús nær merkum áfanga á gamlársdag, en hann verður 80 ára. Hér að neðan má sjá hvernig hann sér leikina fyrir sér í enska boltanum.




Sunderland 0 - 2 Tottenham (12:45 á morgun)
Ég held mikið upp á Tottenham því ég dæmdi hjá þeim í gamla daga á White Hart Lane. Sunderland er í neðri flokki í breskri knattspyrnu, það eru sex lið sem geta eitthvað og hin eru bara að fylgja með. Ef Gylfi verður með, sem hann á skilið, þá fer þetta 0-3.

Man Utd 2 - 0 WBA (15:00 á morgun)
Man Utd hlýtur að vinna þennan leik mjög auðveldlega, því þetta er lang sterkasta lið Bretlandseyja í ótalmörg ár. Þeir eru með frábæran þjálfara, sem var þjálfari hjá Aberdeen og ég dæmdi þar leik í desember áður en þeir urðu Evrópumeistarar og þar kynntist ég Ferguson og á meðal annars áritaða ævisögu hans.

Norwich City 0 - 1 Man City(15:00 á morgun)
City er peningalið með fullt af góðum mönnum. Þeir eru í öðru sæti og eru ríkjandi meistarar, en þetta er ekki eins heilsteypt lið og Man Utd. Norwich er bara eins og önnur lið sem eru með í deildinni en ekki útaf styrkleika. Reynslan að verða eitthvað er ekki á dagskrá en þeir koma til seinna. Þetta minnir á lið eins og Leeds, þeir geta sprungið út, en það er ekki möguleiki eins og er, ekki í þessum leik.

Reading 0 - 0 West Ham(15:00 á morgun)
Þetta verður svona puð leikur. Þarna eigast við tvö Íslendingalið. Leikmenn léku með öðru og nokkrir Íslendingar áttu hitt, en þetta voru vitlausustu viðskipti Íslendinga frá upphafi.

Aston Villa 2 - 0 Wigan(15:00 á morgun)
Þetta er svolítið sérstakur leikur. Aston Villa er lið á uppleið þrátt fyrir stórtöp í síðustu tveimur leikjum. Ég átti leið til Birmingham og dvaldi einnig við í Leeds til að taka þátt í að dæma leik. Þetta verður ansi spennandi leikur, en Villa er á heimavelli, svo þeir vinna 2-0. Wigan er svona að fljóta með eins og ég hef áður nefnt.

Stoke City 3 - 1 Southampton(15:00 á morgun)
Það er sama upp á teningnum hér. Stoke City er með einn flottasta leikvöll Englands og þar kom ég og var viðstaddur ásamt fleiri mönnum og sá þar Stoke leika gegn Cardiff undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar og Stoke vinnur þennan leik í dag, 3-1. Southampton er þarna að sunnan, ágætt lið, en þeir eru bara upp og niður.

Fulham 2 - 1 Swansea(15:00 á morgun)
Það eru taugar til Swansea, þar sem ég fór að dæma í Evrópukeppni. Leik Swansea og Sofia, sem endaði 1-1 og hafði mjög gaman af. Swansea er merkilegur staður fyrir það að borgin var jöfnuð jörðu í stríðinu.

Fulham er sterkt lið, en hefur aldrei getað sannað sig almenninlega, þjálfara Swansea þekki ég vel til og kynntist honum þegar hann var þriggja ára og pabbi hans Finn Laudrup var einn af bestu knattspyrnumönnum Evrópu og spilaði í leik sem ég dæmdi í Helsinki þar sem Norðurlandaúrvalið mætti Sovétríkjunum og ósk mín er sigur Swansea en Fulham sigrar þennan leik.

Arsenal 1 - 0 Newcastle(17:30 á morgun)
Ég er með taugar til Arsenal, vegna þess að ég dæmdi leik Arsenal og íslenska landsliðsins, þetta var sennilega 1968, það var gaman og vinnur Arsenal þennan leik með einu marki gegn engu.

Everton 1 - 1 Chelsea(13:30 á sunnudag)
Ég er með miklar taugar til Everton því David Moyes er þjálfari Everton. Ég er búinn að þekkja hann frá því hann fæddist. Sonur skólastjóra í Glasgow. Moyes er frábær þjálfari og gengur vel, en til þess að móðga engan þá held ég mikið upp á Chelsea því þetta er flottur klúbbur. Þetta verður erfiður leikur, fer jafntefli 1-1. Það geta allir skorað, jafnvel bakverðirnir.

QPR 1 - 3 Liverpool(16:00 á sunnudag)
Ég fór og sá QPR leika á móti Arsenal og þá gat ég ómögulega séð að QPR væri neitt verra lið en efstu lið á Bretlandi. Liverpool er mitt lið og er heiðursfélagi númer eitt hjá Liverpoolklúbbnum og það vegur stórt.

Ég dæmdi bæði leiki Liverpool og leiki hér heima gegn KR og hef haldið mikið upp á Liverpool þó ég sé fyrir mikilli óánægju með getu þarna, því ég held að það séu nokkrir aðilar sem hafa verið lengi þarna eins og Steven Gerrard og ég held að þeir séu að brenna út. Þeir ættu að fara að sinna unglingastarfinu og Jamie Carragher ætti að snúa sér að kránni og selja bjór. Ég get ekki hugsað mér að Liverpool tapi, en þetta verður erfitt hjá þeim, ég vorkenni þeim, en ég tippa á sigur þeirra.
Slapp
banner
banner