Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni á morgun en þá eru átta leikir á dagskrá.
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann hefur litla trú á sínum mönnum í Liverpool gegn Manchester United.
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni en hann hefur litla trú á sínum mönnum í Liverpool gegn Manchester United.
QPR 1 - 2 Tottenham (12:45 á morgun)
Gylfi byrjar og Tottenham vinnur. Þá verður hann í byrjunarliðinu það sem eftir er.
Aston Villa 0 - 0 Southampton (15:00 á morgun)
Þetta er hundleiðinlegur leikur. Helmingurinn af áhorfendum fer í hálfleik.
Everton 4 - 3 Swansea (15:00 á morgun)
Þetta eru tvö af skemmtilegri liðum deildarinnar. Everton tapar ekkert á Goodison.
Fulham 1 - 0 Wigan (15:00 á morgun)
Berbatov heldur boltanum í fjórar mínútur áður en hann skorar.
Norwich 1 - 3 Newcastle (15:00 á morgun)
Cabaye er kominn aftur og Newcastle hrekkur í gang.
Stoke 2 - 1 Chelsea (15:00 á morgun)
Stoke tapar ekki mikið á heimavelli og ég ætla að spá þeim sigri. Benítez verður rekinn og Gaui Þórðar tekur við það sem eftir er tímabils.
Reading 1 - 0 WBA (15:00 á morgun)
Þetta verða óvænt úrslit. Þetta verður jafn leikur sem vinnst á sjálfsmarki.
Sunderland 2 - 1 West Ham
Sunderland vinnur fyrst að Andy Carroll er meiddur.
Manchester United 4 - 0 Liverpool (13:30 á sunnudag)
Sem grjótharður Liverpool maður ætla ég að segja 4-0 fyrir Manchester United. Þetta verður öruggur sigur hjá United.
Arsenal 3 - 2 Manchester City (16:00 á sunnudag)
Manchester City getur spilað leiki sem eru ógeðslega leikir en ég hef trú á að þetta verði skemmtilegur leikur sem Arsenal vinnur.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)




