Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, fékk þrjá rétta þegar hann tippaði á leiki helgarinnar á Englandi fyrir viku síðan.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, er á leið til norska félagsins Sarpsborg. Þórarinn Ingi gaf sér tíma frá því að pakka í töskur til að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni. Hér að neðan má sjá spá hans.
Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, er á leið til norska félagsins Sarpsborg. Þórarinn Ingi gaf sér tíma frá því að pakka í töskur til að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni. Hér að neðan má sjá spá hans.
Liverpool 3 - 0 Norwich (15:00 á morgun)
Sem grjótharður Liverpool maður hef ég ávallt trú á okkar mönnum. Suarez og Sturridge redda deginum.
Manchester City 5 - 0 Fulham (15:00 á morgun)
Man City eru að vakna aðeins og Kompany ekki í banni. Þeir leika sér að slöku liði Fulham.
Newcastle 0 - 1 Reading (15:00 á morgun)
Ég ætla að vera svo bjartsýnn að Reading-menn taki þennan leik. Pardew er búinn að skíta upp á herðar með þetta fína lið sem hann er með í höndunum. Ben Harfa fer eftir þennan leik í Liverpool.
Swansea 0 - 0 Stoke (15:00 á morgun)
Klassískur jafnteflisleikur, Stoke er leiðinlegasta lið sem spilað hefur í Prem league en því miður skilar þetta þeim ágætis árangri. Swansea eru með stóra M-ið frammi en hann gæti potað einu inn..
West Ham 0 - 2 QPR (15:00 á morgun)
Bara svo það sé á hreinu, þegar þú ræður Harry "King" Redknapp þá ertu ekkert að fara að falla. QPR kicka í gang í þessum leik og enda fyrir miðja töflu, promise.
Wigan 1 - 0 Sunderland (15:00 á morgun)
Alltaf verið hrifinn af Martinez og hans skoðun á leiknum. Wigan menn vinna þennan leik með sjálfsmarki frá markmanni Sunderland.
West Brom 4 - 0 Aston Villa (17:30 á morgun)
Þú gætir sett stráka sem eru á sjötta ári inn á völlinn á móti Aston Villa og þeir myndu pakka þeim saman. Lið sem er lélegast í deildinni og fellur með stæl.
Chelsea 1 - 1 Arsenal (13:30 á sunnudag)
Þarna er um að ræða jafntefli, Theo Walcott skorar og fær standpínu því hann er búinn að skrifa undir nýjan samning. Fernando Torres skorar fyrir Chelsea og Rafa Benitez fær standpínu.
Tottenham 0 - 2 Man Utd (16:00 á sunnudag)
Mér þykir leiðinlegt að segja þetta sem Liverpool maður, það stoppar ekkert lið Man U. Þótt það yrði steypað fyrir markið myndi RVP samt einhvernveginn ná að skora. Ótrúlegt lið sem vinnur þessa deild eins og að drekka vatn. B.T.W ég hata það samt.
Southampton 0 - 1 Everton (20:00 á mánudag)
Everton búið að koma mikið á óvart í vetur og heldur heiðri Liverpool borgar, Fellaini skorar með dúnhárinu sínu.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Heimir Hallgrímsson (3 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)



