Óvænt úrslit á Old Trafford?
Það fer fram heil umferð í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og á morgun. Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Séð og Heyrt sem bráðlega tekur til starfa hja Morgunblaðinu, er spámaður okkar að þessu sinni.
Þórarinn Ingi Valdimarsson reið ekki feitum hesti frá síðustu umferð og var aðeins með þrjá rétta.
Þórarinn Ingi Valdimarsson reið ekki feitum hesti frá síðustu umferð og var aðeins með þrjá rétta.
Sunderland 2 - 1 Swansea (í kvöld 19:45)
Sunderland á siglingu. Fletcher og Adam Johnsons skora. Ashley Williams, þekktur sem gaurinn sem ætlaði að drepa Van Persie, skorar sárabótarmark.
Stoke 0 - 1 Wigan (í kvöld 19:45)
Jonathan Walters skorar sjálfsmark. Það er fyndið.
Q.P.R. 1 - 5 Man City (í kvöld 19:45)
QPR byrjar vel, fær draumabyrjun og Remy skorar snemma. Eftir það hrynur leikur þeirra og City menn leika sér í 80 mínútur. Dzeko, Silva, Milner og Tevez með tvö.
Aston Villa 1 - 0 Newcastle (í kvöld 19:45)
Benteke tekur einhvern fáránlegan sprett frá miðju og hamrar boltanum í netið. Franska landsliðið tapar enn einu sinni á útivelli. En botninum er náð eftir þennan leik. Sanniði til. Nema þeir fari bara í verkfall.
Norwich 1 - 1 Tottenham (á morgun 19:45)
Grant Holt skorar pottþétt. Aaron Lennon spólar sig í gegn og kemur boltanum í netið. Óþolandi kanntmaður.
Everton 0 - 0 W.B.A. (á morgun 19:45)
Jevlavich er kaldur. Fellaini skallar í slá eftir aukaspyrnu Baines. Annað er ekki að frétta úr þessum leik.
Arsenal 2 - 3 Liverpool (á morgun 19:45)
Þetta verður eitthvað. Held að þetta verði markaleikur. Var að tala við Siggu Kling og hún spáði mörkum. Hendum fimm mörkum á þetta. Arsenal skorar tvö í fyrri en seinni hálfleikur verður eign Liverpool og Suarez hendir í þrennu.
Fulham 0 - 1 West Ham (á morgun 20:00)
Riise kveður Fulham með sjálfsmarki.
Man Utd 0 - 1 Southampton (á morgun 20:00)
Þarna koma tíðindin. Sir Alex Ferguson hvílir Carrick og Van Persie. Við það hrynur liðið og þetta verður eins og leikurinn við Derby þegar Wanchobe sló í gegn hér forðum daga. Gaston Ramirez skorar sigurmarkið.
Reading 0 - 3 Chelsea (á morgun 20:00)
Tvö orð. Demba Ba.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)




