Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 01. febrúar 2013 13:00
Magnús Már Einarsson
Jói Kalli spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Benedikt Bóas Hinriksson fékk einungis einn réttan þegar hann tippaði á leiki vikunnar í enska boltanum en það er slakasti árangur tímabilsins.

Jóhannes Karl Guðjónsson, miðjumaður ÍA, tippar á leiki helgarinnar að þessu sinni. Jói Kalli spilaði lengi í Englandi á sínum tíma og hann fylgist vel með úrvaldseildinni í dag.

,,Ég hef rosalega mikinn áhuga alltaf á enska boltanum. Ég fylgist með öllum leikjum og spái og spekúlera mikið í þessu," sagði Jói Kalli við Fótbolta.net í dag en hann heldur með Liverpool.

,,Ég var að vona að Liverpool væri að komast aftur á skrið og hlakkaði til að sjá þá vinna Arsenal þegar þeir komust í 2-0 en því miður gekk það ekki upp. Ég hef haldið með Liverpool síðan að ég man eftir mér. Ég fylgist alltaf með þeim og vona að þetta fari að lagast hjá þeim."


QPR 2 - 0 Norwich (12:45 á morgun)
Harry Redknapp er búinn að ná sér í fullt af mönnum og QPR vinnur 2-0.

Arsenal 3 -0 Stoke (15:00 á morgun)
Ég held að þetta verði auðveldur leikur hjá Arsenal, þeir eru að komast í gang.

Everton 2 - 1 Aston Villa (15:00 á morgun)
Everton eru búnir að vera mjög öflugir og David Moyes er að gera frábæra hluti með þá á meðan Aston Villa hefur ekkert getað.

Reading 1 - 1 Sunderland (15:00 á morgun)
Reading náði góðum úrslitum gegn Chelsea en þetta fer jafntelfi.

Newcastle 3 - 3 Chelsea (15:00 á morgun)
Þetta verður markaleikur. Benítez verður að blása aðeins til sóknar og það sama á við um Newcastle.

West Ham 1 - 1 Swansea (15:00 á morgun)
Stóri Sam spilar aldrei mikinn sóknarbolta.

Wigan 1 - 2 Southampton (15:00 á morgun)
Southampton spilar ágætis fótbolta og ég held að nýi stjórinn eigi eftir að gera fína hluti.

Fulham 1 - 3 Manchester United (17:30 á morgun)
Þetta er öruggt hjá United en það gæti verið að Berbatov skori eitt fyrir Fulham.

WBA 0 - 2 Tottenham (13:30 á sunnudag)
WBA er búið að ganga aðeins of vel að mínu mati og ég held að Tottenham vinni.

Manchester City 3 - 1 Liverpool (16:00 á sunnudag)
Ég vildi óska þess að myndi halda að Liverpool vinni þennan leik en ég held það ekki.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp
banner
banner
banner