Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 08. febrúar 2013 12:00
Magnús Már Einarsson
Ívar Ingimarsson spáir í leiki helgarinnar
Ívar Ingimarsson.
Ívar Ingimarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Jóhannes Karl Guðjónsson fékk þrjá rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar á Englandi um síðustu helgi.

Ívar Ingimarsson, annar fyrrum leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni. Ívar lagði skóna á hilluna í fyrra en hann lék lengst af á ferli sínum með Reading.

Ívar er bjartsýnn á að hans gömlu félagar nái að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni í ár.

,,Ég hef trú á því að þeir haldi sér uppi. Síðan að Brian McDermott tók við hefur liðið alltaf staðið sig betur seinni hluta tímabilsins og það virðist vera að gerast líka núna," sagði Ívar.


Tottenham 2 - 0 Newcastle (12:45 á morgun)
Gylfi kemur inn á og skorar annað markið fyrir Tottenham.

Chelsea 1 - 0 Wigan (15:00 á morgun)
Chelsea nær að merja þetta. Fernando Torres skorar.

Stoke 2 - 3 Reading (15:00 á morgun)
Það er búið að ganga töluvert betur hjá Reading upp á síðkastið. Liðinu hefur yfirleitt gengið ömurlega gegn Stoke á útivelli en Reading vinnur þennan leik. Jimmy Kebe skorar allavega eitt.

Swansea 0 - 0 QPR (15:00 á morgun)
Harry nær ekki sigri með liði QPR.

Arsenal 2 - 0 Sunderland (15:00 á morgun)
Ég er alltaf rosalega hrifinn af Arsene Wenger. Sama hvað öllum finnst um titlaleysi þá finnst mér hann vera flottur stjóri sem spilar flottan fótbolta.

Norwich 2 - 1 Fulham (15:00 á morgun)
Norwich nær að vinna þetta.

Southampton 1 - 1 Manchester City (17.30 á morgun)
Southampton stendur sig vel á móti City og þetta verða óvænt úrslit.

Aston Villa 0 - 1 West Ham (13:30 á sunnudag)
Andy Carroll skoraði sigurmark West Ham um síðustu helgi og hann skorar líka sigurmarkið núna á síðustu fimm mínútunum.

Manchester United 1 - 2 Everton (16:00 á sunnudag)
Manchester United ætti að vinna þennan leik en fyrst ég er að tippa þá ætla ég að spá því að Moyesarinn hafi betur gegn Ferguson. Rooney skorar markið fyrir Manchester.

Liverpool 3 - 1 WBA (20:00 á mánudag)
Það er klárt að Liverpool vinnur þennan leik. Sturridge er búinn að skora á fullu og Liverpool mun ná sér gríðarlega vel á strik í þessum leik.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp
banner
banner