Ívar Ingimarsson fékk þrjá rétta þegar hann spáði í spilin fyrir síðustu umferð í ensku úrvalsdeildinni.
Teitur Örlygsson, þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Stjörnunnar í körfubolta, fær það verkefni að spá í leikina í ensku úrvalsdeildinni og úrslitaleik enska deildabikarsins.
Teitur er harður stuðningsmaður Manchester United og hann spáir sínum mönnum að sjálfsögðu sigri um helgina.
Teitur Örlygsson, þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Stjörnunnar í körfubolta, fær það verkefni að spá í leikina í ensku úrvalsdeildinni og úrslitaleik enska deildabikarsins.
Teitur er harður stuðningsmaður Manchester United og hann spáir sínum mönnum að sjálfsögðu sigri um helgina.
Fulham 2 - 1 Stoke (12:45 á morgun)
Stoke hefur ekki heillað mig í gegnum árin eins og marga aðra. Berbatov skorar allavega eitt.
Arsenal 2 - 0 Aston Villa (15:00 á morgun)
Þetta er búið að vera skelfilegt hjá Arsene Wenger og félögum undanfarnar vikur og ég held að þeir verði andlega svolítið niðri. Aston Villa hefur samt verið lélegasta liðið í ensku úrvalsdeildinni undanfarna mánuði og ég held að Arsenal hafi þetta.
Norwich 1 - 1 Everton (15:00 á morgun)
Ég er hrifinn af Norwich, þeir hafa komið á óvart í þeim leikjum sem ég hef séð með þeim í vetur.
QPR 0 - 3 Manchester United (15:00 á morgun)
Það er frábært að fá þennan leik inn í miðja Meistaradeildina. Ferguson hvíldi átta menn í síðasta leik og ég held að hann stilli þessu liði bara upp eftir því hvernig standið á leikmönnum er, þetta er svo frábær hópur.
Reading 1 - 1 Wigan (15:00 á morgun)
Þetta er ekki leikurinn sem maður er andvakandi yfir.
WBA 2 - 1 Sunderland (15:00 á morgun)
Ég sá einhvern leik með WBA um daginn og mér fannst þeir vera nokkuð flottir þar.
Manchester City 1 - 1 Chelsea (13:30 á sunnudag)
Ég óska þess að þetta fari jafntefli og United auki forskotið til að geta einbeitt sér að hinum keppnunum.
Newcastle 2 - 0 Southampton (13:30 á sunnudag)
Það eru flottir áhorfendur á St James Park og Newcastle tekur þennan leik.
Swansea 2 - 1 Bradford (16:00 á sunnudag) - Deildabikar
Ég veit ekki hvort það verði eitthvað óvænt þarna. Laudrup virðist vera búinn að hugsa um þennan leik í tvær vikur og ég held að þetta gangi upp hjá þeim.
West Ham 1 - 3 Tottenham (20:00 á mánudag)
Tottenham er miklu betra fótboltalið en West Ham getur náð sér á strik oft á tíðum. Ég held samt að Tottenham séu of sterkir þessa dagana. Bale er að afgreiða allt sem þarf að afgreiða þessa dagana.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)




