Teitur Örlygsson náði næstbesta árangri vetrarins þegar hann tippaði á leikina í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku. Teitur fékk sjö rétta af tíu mögulegum en einungis Logi Bergmann Eiðsson hefur náð betri árangri í vetur.
Íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson, Gaupi, spáir í leiki helgarinnar að þessu sinni.
,,Ég held að þetta séu að minnsta kosti ellefu réttir," sagði Gaupi léttur í bragði eftir að hafa lagt fram spá sína.
Chelsea 2 - 0 WBA (15:00 á morgun)
Miðað við það sem á undan er gengið með Benítez þá held ég að þetta verði rafmagnaður leikur hjá Chelsea og þeir muni vinna öruggan sigur.
Everton 1 - 0 Reading (15:00 á morgun)
Reading liðið hefur spilað ágætlega á köflum en Everton er sterkt í Guttagarði og vinnur þennan leik.
Manchester United 2 - 1 Norwich (15:00 á morgun)
Miðað við það sem er framundan hjá United þá held ég að þeir muni vinna þennan leik. Þeir eru orðnir meistarar og það dugar þeim að spila af 70% krafti til að vinna Norwich.
Southampton 1 - 1 QPR (15:00 á morgun)
Þetta er hrikalega snúinn leikur en það er eitthvað sem segir mér það að QPR muni ná í stig á heimavelli Southampton.
Stoke 0 - 0 West Ham (15:00 á morgun)
Stoke eru sterkir á heimavelli. West Ham er að spila ágætlega en þetta er afar mikilvægur leikur fyrir þá því að þeir eru í fallbaráttu.
Sunderland 0 - 1 Fulham (15:00 á morgun)
Mér fannst Fulham líta vel út á móti Stoke í síðasta leik og ég spái því að þeir landi útisigri.
Swansea 3 - 2 Newcastle (15:00 á morgun)
Það er gríðarleg stemning í kringum Swansea eftir að þeir unnu deildabikarinn og þeir vinna heimasigur.
Wigan 0 - 2 Liverpool (17:30 á morgun)
Liverpool hefur spilað frábærlega upp á síðkastið þó að úrslitin hafi ekki alltaf fallið með þeim en ég held að þeir vinni góðan útisigur.
Tottenham 2 - 1 Arsenal (16:00 á sunnudag)
Tottenham er á skriði og þeir eru í baráttu um Meistaradeildarsæti. Gareth Bale er í banastuði og Gylfi dettur inn og skorar í 2-1 sigri á nágrönnunum í Arsenal.
Aston Villa 0 - 2 Manchester City (20:00 á mánudag)
Aston Villa er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni en City má ekki við því að tapa stigum og vinnur örugglega.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)


