Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 08. mars 2013 12:00
Magnús Már Einarsson
Daníel Rúnarsson spáir í leiki helgarinnar í enska boltanum
Daníel Rúnarsson.
Daníel Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ashley Williams fyrirliði Swansea fékk mörg skilaboð á boladeginum í fyrra.
Ashley Williams fyrirliði Swansea fékk mörg skilaboð á boladeginum í fyrra.
Mynd: Twitter
Guðjón Guðmundssson fékk sjö rétta þegar hann spáði í síðustu umferð í enska boltanum. Gaupi náði þar með að jafna Teit Örlygsson með næstbesta árangur vetrarins en Logi Bergmann Eiðsson er sem fyrr á toppnum.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari, fær það verkefni að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni. Daníel stendur í ströngu í dag en hann er í nefnd sem stendur fyrir boladeginum á Twitter.

,,Ég skora á alla, bæði þá sem eru á Twitter nú þegar og þá sem langar að prófa, að taka þátt í Boladeginum. Boladagurinn snýst í raun og veru um að bögga fræga fólkið í sólarhring og sá sem stendur sig best að mati dómnefndar fær iPad Mini í verðlaun, í boði Símans. Allar nánari upplýsingar á www.boladagur.is," sagði Daníel.

Hér að neðan má sjá spá Daníels fyrir helgina en sex leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni og fjórir í enska bikarnum.


Enska úrvalsdeildin:

WBA 3 - 1 Swansea (15:00 á morgun)
Ef eitthvað var að marka Boladaginn í fyrra þá verða varnarmenn Swansea ringlaðir eftir sautján þúsund tíst um "#boladagur". Sjá meðfylgjandi mynd til hliðar.
Clarke kortleggur Swansea og lokar á þá. WBA taka því þennan leik og fara þá upp fyrir Liverpool í töflunni. Er ekki örugglega opið í Ellingsen?

QPR 0 - 0 Sunderland (15:00 á morgun)
Þar sem QPR menn hafa unnið heila þrjá leiki í vetur þá væri það geðveiki að spá þeim sigri. Verða samt að fara að gera eitthvað ef þeir vilja ekki falla. Fá einn punkt úr þessum leik.

Reading 2 - 2 Aston Villa (15:00 á morgun)
Verð að vera heiðarlegur hér og segja eins og er: Ég hef ekki hugmynd og er eiginlega alveg sama. Tvö afskaplega vond lið sem falla bæði í vor ásamt QPR.

Newcastle 1 - 1 Stoke (15:00 á sunnudag)
Jafntefli sem kemur engum á óvart. Vona samt að Newcastle vinni, Tony Pulis er þreyttari en Harlem Shake.

Liverpool 3 - 3 Tottenham (16:00 á sunnudag)
Liverpool átti frábæran leik í síðustu umferð og þar af leiðandi ætti liðið skíta upp á bak núna. Held samt að þeir nái jafntefli gegn Tottenham. Þetta verður einvígi tveggja heitustu leikmanna deildarinnar. Gareth Bale setur þrennu eftir þrjár stoðsendingar frá Gylfa. Mæli með að menn hendi captain á hann í Fantasy. Suarez svarar með tveimur sóló mörkum og stoðsendingu á Sturridge sem mætir aftur eftir meiðsli. Allen snýr sér í hringi.

8-liða úrslit enska bikarsins:

Everton 2 - 0 Wigan (12:45 á morgun)
Fyrir Liverpool stuðningsmann er Moyes óþolandi góður stjóri. Everton ættu að fara auðveldlega í gegnum þetta á heimavelli. Míkrafónninn setur allavega eitt.

Manchester City 5 - 0 Barnsley (17:30 á morgun)
Þó svo að allt geti gerst í bikarnum þá hef ég enga trú á Barnsley. Síðasti séns City manna á bikar, þeir rúlla yfir Barnsley - skemmtun á Etihad.

Millwall 2 - 1 Blackburn (14:00 á sunnudag)
Fyrsta flokks enskur leikur. Barátta. Vonandi blautur og leðjuborinn völlur. Lágmark þrír leikmenn með sáraumbúðir á hausnum í lok leiks. Heimavöllurinn tekur þetta svo í lokin.

Manchester United 2 - 1 Chelsea (16:30 á sunnudag)
Benitez vinur minn fagnaði örugglega ekkert sérstaklega þegar United datt út úr Meistaradeildinni, sérstaklega á þennan hátt. United dettur ekki út úr tveimur keppnum með nokkurra daga millibili. Arsenal er meira í því. United kemst í 2-0 en Chelsea setja mark þegar 15 mínútur eru eftir og hleypa spennu í þetta.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp
banner
banner