Íþróttafréttamaðurinn gamalreyndi Bjarni Felixson tippar á leiki helgarinnar í Englandi að þessu sinni.
Bjarni hefur fylgst vel með enska boltanum í marga áratugi og gerir það ennþá.
Bjarni hefur fylgst vel með enska boltanum í marga áratugi og gerir það ennþá.
,,Ég fylgist með en ég glápi ekki mikið á þetta og eyði ekki klukkustundum í að hanga yfir þessu," sagði Bjarni við Fótbolta.net.
,,Það er afturhvarf til fortíðar hjá mér því ég fylgist með útvarpslýsingum á BBC world service. Þegar ég byrjaði að fylgjast með þurftu menn að leggja loftnet á milli húsa og bíða eftir góðu veðri til að það yrðu góð hlustunarskilyrði. Núna fylgist ég með eins og þegar ég var strákur og hef voðalega gaman að því."
Everton 1 - 1 Manchester City (15:00 á morgun)
Þetta verður hörkuleikur. Þrátt fyrir tap Everton í bikarnum um daginn þá held ég að þeir girði sig í brók gegn City.
Aston Villa 2 - 1 QPR (15:00 á morgun)
Ég hef alltaf taugar til Harry Redknapp en ég held að þetta verði heimasigur.
Southampton 0 - 2 Liverpool (15:00 á morgun)
Liverpool hefur fengið vind í seglinn og þeir eru komnir í gang á meðan Southampton er í basli.
Stoke 1 - 1 WBA (15:00 á morgun)
Þetta er ekta jafnteflisleikur í grannaslag.
Swansea 0 - 1 Arsenal (15:00 á morgun)
Ég verð að setja 1-0 á Arsenal. Þeir sýndu það á miðvikudag að þeir geta ýmislegt og þeir munu halda því a´fram.
Manchester United 3 - 0 Reading (17:30 á laugardag)
Heimamenn geta einbeitt sér að deildinni og bikarnum og þeir vinna þetta.
Sunderland 1 - 0 Norwich (13:30 á sunnudag)
Ég hef alltaf góðar taugar til Sunderland og ég held að þeir vinni þennan leik.
Tottenham 2 - 1 Fulham (15:00 á sunnudag)
Taflan segir að Tottenham eigi að vinna. Ég er ekkert alltof viss um það en ég held að þeir vinni 2-1.
Chelsea 2 - 1 West Ham (16:00 á sunnudag)
Chelsea er að reyna að halda í 4. sæti og verða að taka þessa leiki á heimavelli.
Wigan 0 - 2 Newcastle (16:00 á sunnudag)
Af því að þeir leika í skemmtilegum búningum hjá Newcastle þá ætla ég að spá þeim sigri. Búningarnir og Frakkarnir í liðinu klára þetta.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)




