Bjarni Fel fékk fimm rétta þegar hann spáði í leikina í enska boltanum í síðustu umferð.
Ívar Guðmundsson, útvarpsmaður á Bylgjunni, spáir í leikina að þessu sinni en hann er harður Liverpool maður.
,,Mitt lið í Enska er Liverpool en þeir voru aðalliðið þegar ég byrjaði að fylgjast með í kringum 1975. Hef fylgt þeim alla tíð síðan," sagði Ívar en hér að neðan má sjá spá hans.
Ívar Guðmundsson, útvarpsmaður á Bylgjunni, spáir í leikina að þessu sinni en hann er harður Liverpool maður.
,,Mitt lið í Enska er Liverpool en þeir voru aðalliðið þegar ég byrjaði að fylgjast með í kringum 1975. Hef fylgt þeim alla tíð síðan," sagði Ívar en hér að neðan má sjá spá hans.
Sunderland 0 - 2 Manchester United (12:45 á morgun)
Þetta á að vera öruggur leikur fyrir Utd enda fátt sem kemur í veg fyrir að þeir vinni deildina.
Arsenal 2 - 1 Reading (15:00 á morgun)
Þetta er svona skyldusigur fyrir Arsenal ef þeir ætla að halda sér í hópi fimm efstu liða deildarinnar.
Manchester City 1 - 0 Newcastle (15:00 á morgun)
Finnst eins og það hafi mikað stemningin í herbúðum City eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Þeir ná að merja sigur.
Southampton 2 - 3 Chelsea (15:00 á morgun)
Chelsea ætla sér annað sætið í deildinni og taka þennan leik.
Swansea 1 - 2 Tottenham (15:00 á morgun)
Aðeins eitt skorað í fyrri leik liðana en Gylfi dúndrar sigurmarkinu í þetta skipti.
West Ham 1 - 1 WBA (15:00 á morgun)
Verður hundleiðinlegur leikur þó tvö mörk verði skoruð :)
Wigan 2 - 0 Norwich (15:00 á morgun)
Wigan taka þennan leik en lítið verður um fallegan fótbolta.
Everton 1 - 2 Stoke (17:30 á morgun)
Þetta er meira óskhyggja en skynsemi en það hentar mér og mínu liði að Everton vinni.
Aston Villa 1 - 3 Liverpool (12:30 á sunnudag)
Mitt lið hefur unnið síðustu fjóra leiki í deildinni og halda því áfram. Markahæsti leikmaður deildarinnar Suarez mun setja tvö og Steven G eitt.
Fulham 2 - 0 QPR (19:00 á mánudag)
QPR er fallið nánast og lítil fyrirstaða fyrir Fullham.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)




