Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 05. apríl 2013 12:00
Magnús Már Einarsson
Edda Garðars spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Edda Garðarsdóttir.
Edda Garðarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Ívar Guðmundsson fékk sjö rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en það er einn besti árangur vetrarins.

Edda Garðarsdóttir, leikmaður Chelsea og íslenska landsliðsins, spáir í leikina að þessu sinni.

Edda verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu þegar það mætir Svíum í vináttulandsleik á morgun.



Reading 0 - 2 Southampton (11:45 á morgun)
Einn af þeim sem er að þjálfa mig er njósnari hjá Southampton svo ég held smá með þeim.

WBA 2 - 0 Arsenal (14:00 á morgun)
Nú verða einhverjir Arsenal menn reiðir en ég held að WBA vinni. Það er alveg hægt að skora hjá Arsenal.

Stoke 0 - 0 Aston Villa (14:00 á morgun)
Ég hata Stoke, það er leiðinlegasta knattspyrnulið sögunnar.

Norwich 1 - 2 Swansea (14:00 á morgun)
Ég held að Swansea taki þetta.

Liverpool 4 - 0 West Ham (12:30 á sunnudag)
Ég hef trú á mínum mönnum. Suarez skorar tvö og Gerrard tvö.

Tottenham 1 - 1 Everton (13:05 á sunnudag)
Tottenham eru vængbrotnir eftir meiðslin hjá Bale. Gylfi fær að taka aukapspyrnur í fjarveru hans og hann skorar úr einni.

Chelsea 3 - 1 Sunderland (14:00 á sunnudag)
Torres skorar í deildinni af því að hann stóð sig svo vel í gær. Ivanovic gefur eitt mark.

Newcastle 1 - 1 Fulham (14:00 á sunnudag)
Ég myndi tvítryggja þennan ef ég mætti og setja X2.

QPR 0 - 0 Wigan (15:05 á sunnudag)
Það nennir enginn að horfa á þetta.

Manchester United 1 - 0 Manchester City (19:00 á mánudag)
Ég held að United vinni þetta, því miður. Ryan Giggs skorar.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp