Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 12. apríl 2013 12:00
Magnús Már Einarsson
Þórður Guðjónsson spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Þórður er mikill kattarvinur.
Þórður er mikill kattarvinur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Edda Garðarsdóttir fékk þrjá rétta þegar hún spáði á leiki helgarinnar í enska boltanum í síðustu viku.

Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins ÍA, spáir í leikina að þessu sinni. Þórður hefur reynslu af því að leika í ensku úrvalsdeildinni en hann spilaði þar með Derby á sínum tíma.

Sjö leikir eru í ensku úrvalsdeildinni um helgina, tveir leikir í undanúrslitum enska bikarsins og þá fékk Þórður að tippa á einn leik í ensku Championship deildinni þar sem bróðir hans verður í eldlínunni.

Enska úrvalsdeildin:

Arsenal 3 - 0 Norwich (14:00 á morgun)
Þetta verður öruggur sigur á Emirates.

Aston Villa 1 - 1 Fulham (14:00 á morgun)
Baráttujafntefli. Þetta er eitt síðasta hálmstráið hjá Villa en þeir ná bara í eitt stig.

Everton 2 - 2 QPR (14:00 á morgun)
Everton kemst yfir en leikmenn QPR koma sterkir til baka og ná að jafna í lokin.

Reading 1 - 3 Liverpool (14:00 á morgun)
Mínir menn komast heldur betur í gang og þetta verður mjög öruggur sigur hjá Liverpool.

Southampton 0 - 1 West Ham (14:00 á morgun)
Ég hef trú á að West Ham fari suður með sjó og nái í dýrmæt þrjú stig.

Newcastle 2 - 1 Sunderland (11:00 á sunnudag)
Stóri bróðir í Newcastle hefur betur. Di Canio mun ekki sækja neit í greipar Newcastle.

Stoke 1 - 1 Manchester United (13:05 á sunnudag)
Þetta verður steindautt jafntefli á Britannia.

Undanúrslit enska bikarsins:

Millwall 0 - 2 Wigan (16:15 á morgun)
Wigan fer áfram eftir harða baráttu.

Chelsea 2 - 1 Manchester City (16:00 á sunnudag)
Chelsea hefur verið nánast óstöðvandi bikarnum undanfarin ár og þeir vinna City í frekar jöfnum leik.

Championship deildin:

Wolves 2 - 1 Huddersfield (14:00 á morgun)
Þarna er litli bróðir að spila við gamla félagið hjá öðrum litla bróður. Björn og félagar eru í mikilli baráttu um að halda sæti sínu í deildinni. Björn er heitur þessa dagana og mun skora eitt mark.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Edda Garðarsdóttir (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner