Gary Martin fékk þrjá rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku.
Nigel Quashie, miðjumaður BÍ/Bolungarvíkur, spáir í leikina að þessu sinni.
Quashie lék á sínum tíma í ensku úrvalsdeildinni með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton, WBA og West Ham.
Nigel Quashie, miðjumaður BÍ/Bolungarvíkur, spáir í leikina að þessu sinni.
Quashie lék á sínum tíma í ensku úrvalsdeildinni með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton, WBA og West Ham.
Manchester City 3 -0 West Ham (14:00 á morgun)
Manchester City er sterkt heima og West Ham lendir í vandræðum.
Everton 2 - 0 Fulham (14:00 á morgun)
Fulham hefur verið í erfiðleikum á útivelli á meðan Everton er sterkt lið í baráttu um Evrópusæti.
Southampton 0 - 0 WBA (14:00 á morgun)
Þessi leikur skipti litlu máli. Southampton hefur gert nóg til að halda sæti sínu í deildinni og WBA nær ekki betri úrslitum en þetta á útivelli.
Stoke 1 - 0 Norwich (14:00 á morgun)
Stoke eru mjög sterkir á heimavelli þó að þeim hafi ekki gengið svo vel á þessu tímabili og þeir verða of sterkir fyrir Norwich.
Wigan 1 - 2 Tottenham (14:00 á morgun)
Ef Tottenham ætlar að komast í Meistaradeildina þá verður liðið að vinna svona útileiki. Wigan mun sýna góða baráttu en ég held að það dugi ekki.
Newcastle 1 - 0 Liverpool (16:30 á morgun)
Newcastle hefur verið í vandræðum heima en ég held að fjarvera Luis Suarez muni taka sinn toll hjá Liverpool og heimamenn vinna.
Reading 0 - 1 QPR (12:30 á sunnudag)
Lið QPR hefur verið óheppnara en Reading og þeir eru með betra lið. QPR nær sigrinum þó að hann verði ekki fallegur.
Chelsea 2 - 0 Swansea (14:00 á sunnudag)
Chelsea hefur átt í vandræðum á heimavelli eftir útileiki í Evrópukeppni en ég held að þeir muni samt ná góðum úrslitum þarna.
Arsenal 1 - 1 Manchester United (15:00 á sunnudag)
Mér skilst að Man United muni gera mikið af breytingum í þessum leik. Arsenal mun leggja allt í sölurnar gegn Van Persie en United hefur staðið sig vel á útivelli á tímabilinu og þetta endar með jafntefli.
Aston Villa 2 - 1 Sunderland (19:00 á mánudag)
Eins og í mörgum öðrum leikjum um helgina þá verður þetta ekki fallegur fótbolti en Aston Villa nær að merja sigur.
Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Þórður Guðjónsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Edda Garðarsdóttir (3 réttir)
Gary Martin (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)


