Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. maí 2013 14:15
Magnús Már Einarsson
Björn Daníel spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Björn Daníel Sverrisson.
Björn Daníel Sverrisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nigel Quashie fékk sex rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar um síðustu helgi í ensku úrvalsdeildinni.

Björn Daníel Sverrisson, leikmaður FH, fær það verkefni að tippa á leiki helgarinnar að þessu sinni.



Fulham 2 - 0 Reading (14:00 á morgun)
Fulham er með Berbatov og Brede Hangeland. Þetta segir sig sjálft.

Norwich 1 - 3 Aston Villa (14:00 á morgun)
Grant Holt er grjótharður og grjóthraður og skorar fyrsta mark leiksins. Beneteke skorar síðan eitt og leggur upp tvö, annað þeirra á Weisman.

Tottenham 1 - 1 Southampton (14:00 á morgun)
Bale verður lortaður og þá er Tottenham í veseni. King R.Lambert skorar úr aukaspyrnu fyrir Southampton.

Swansea 2 - 3 Manchester City (14:00 á morgun)
City lenda í öðru sæti í deildinni og vinna restina af leikjunum. Þar af leiðandi vinna þeir Swansea og lokatölur verða 3-2 fyrir City. Tevez, Silva og Zabaleta skora.

West Ham 1 - 0 Newcastle (14:00 á morgun)
West Ham, they're going ham. Eitt-núll Carroll skalli 72 mín eftir hornspyrnu frá Mark Noble.

WBA 4 - 3 Wigan (14:00 á morgun)
Skemmtilegasti leikur helgarinnar. WBA komast í 4-1 en Wigan leggja ekki árar í bát og ná að skora tvö á síðasta korterinu. Illa þreytt að ná ekki fjórða markinu.

QPR - Arsenal 2-2 (16:30 á morgun)
Klassískur Lúndúnarslagur. Það er alltaf jafnteflislykt af klassískum Lúndúnarslögum

Liverpool 1 - 3 Everton (12:30 á sunnudag)
Í fótbolta eru 11 leikmenn í sitthvoru liðinu, þrír dómarar, einn bolti og Liverpool er alltaf drasl sem tapar fyrir Everton. Jelavic með þrennu.

Manchester United 0 - 1 Chelsea (15:00 á sunnudag)
Steindautt. Luiz skýtur í slánna tvisvar. Persie klikkar víti. Rio og Terry fá rautt. Þangað til á 89. mín þá skorar Torres með bicycle. Mínir menn í Chelsea taka þrjá punkta með sér heim.

Sunderland 4 - 0 Stoke
KH. Kempan (Titus Bramle) haltar útaf á 13 mín og inn á kemur einhver 18 ára gutti sem skorar fyrsta markið í leiknum. Í seinni hálfleik verður þetta bara týpískt Sunderland, possesion football þangað til að hinir gefa færi á sér og þá bara bamm og mark. Leikurinn endar 4-0.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Nigel Quashie (6 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Þórður Guðjónsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Edda Garðarsdóttir (3 réttir)
Gary Martin (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp
banner