Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 10. maí 2013 12:00
Fótbolti.net
Ásgeir Börkur spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Daníel Sverrisson fékk tvo rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðjumaður Sarpsborg 08 í Noregi, spáir í leikina að þessu sinni.

Átta leikir eru á dagskrá í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar, bikarúrslitaleikurinn fer fram á Wembley og þá er leikið í umspili í Championship deildinni. Hér að neðan eru leikirnir tíu sem Ásgeir Börkur tippaði á.

Úrslitaleikur enska bikarsins:

Wigan 0 - 3 Man City (16:15 á morgun)
Þrátt fyrir að hafa stór stjörnuna Franko Di Santo innan sinna raða þá verður það því miður ekki nóg fyrir Wigan menn. Shitty verða í öðrum gír en klára þetta samt sem áður sannfærandi. Pablo Zabaleta vinur minn skorar frábært mark og tvö pot frá Tevez fylgja í kjölfarið.

Úrvalsdeildin:

Aston Villa 1 - 2 Chelsea (11:45 á morgun)
Chelsea vinnur þennan leik með mörkum frá Ramires og David Luiz. Benteke heldur áfram að sýna snilli sína og skorar mark Villa sem verður því miður ekki nóg.

Stoke 0 - 1 Tottenham (12:30 á sunnudag)
Gylfi klárar þennan leik, íslenskt já takk.

Everton 3 - 1 West Ham (14:00 á sunnudag)
Arftaki Sir Alex og mennn hans í Everton verða ofur peppaðir í þessum leik og fara á kostum fyrir framan mark andstæðingana. Distan, Big Fella og Baines sjá um að skora mörk Everton en Andy Carroll fyrir West Ham.

Fulham 2 - 2 Liverpool (14:00 á sunnudag)
Fulham hafa að engu að keppa og mæta Ben-Arfa slakir í þennan leik. Það verður þó til góðs og þeir skora tvö mörk og verða óheppnir að vinna ekki. Liverpool reyna eins og þeir geta að komast ofar á töfluna en þeir verða að sætta sig við jafntefli.

Norwich 1 - 1 WBA (14:00 á sunnudag)
Minn maður Grant Holt verður samur við sig og hendir inn einu powerhouse marki. Fýlupúkinn frá Nigeríu skorar hinsvegar fyrir West Brom menn.

QPR 0 - 4 Newcastle (14:00 á sunnudag)
Ruslið heldur áfram á Loftus Road og niðurlægingin verður alger. Franska mafían sér um markaskorun Newcastle manna.

Sunderland 0 - 2 Southampton (14:00 á sunnudag)
Ég hef haft gaman af Southampton í vetur og þeir halda áfram að gera fína hluti. Klára leiðinlegt Sunderland lið og Di Canio sleppir því að renna sér á grasinu í þetta skiptið.

Manchester United 2 - 1 Swansea (15:00 á sunnudag)
Besta lið deildarinnar í ár siglir þessum sigri heim, Ólafi Þórðarsyni stór-legendi til mikillar ánægju. Grjótharður Vidic skorar tvö eftir föst leikatriði en Routledge fyrir Swansea.

Championship - Umspil:
Watford 2 - 0 (2-1) Leicester (11:30 á sunnudag)
Eina sem skiptir máli í þessari blessuðu Championship deild er að Íslendingarnir Heiðar Helgu og Aron Einar eru komnir upp. Ég hef gaman af Zola og vill sjá hann í ensku úrvalsdeildinni aftur og spái því Watford sannfærandi 2-0 sigri.

Fyrri spámenn:
Logi Bergmann Eiðsson (8 réttir)
Teitur Örlygsson (7 réttir)
Ívar Guðmundsson (7 réttir)
Guðjón Guðmundsson (7 réttir)
Nigel Quashie (6 réttir)
Daníel Geir Moritz (6 réttir)
Bjarni Fel (5 réttir)
Magnús V. Pétursson (5 réttir)
Kolbeinn Tumi Daðason (5 réttir)
Rúnar Már Sigurjónsson (5 réttir)
Matthías Vilhjálmsson (5 réttir)
Heimir Karlsson (5 réttir)
Magnús Gylfason (4 réttir)
Gylfi Þór Orrason (4 réttir)
Gísli Marteinn Baldursson (4 réttir)
Guðmundur Kristjánsson (4 réttir)
Jóhanns Karl Guðjónsson (3 réttir)
Alfreð Finnbogason (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Þorgrímur Þráinsson (3 réttir)
Doddi litli (3 réttir)
Ívar Ingimarsson (3 réttir)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (3 réttir)
Þórður Guðjónsson (3 réttir)
Guðmundur Hilmarsson (3 réttir)
Edda Garðarsdóttir (3 réttir)
Gary Martin (3 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Hannes Þór Halldórsson (2 réttir)
Aron Kristjánsson (2 réttir)
Björn Daníel Sverrisson (2 réttir)
Daníel Rúnarsson (2 réttir)
Benedikt Bóas Hinriksson (1 réttur)
Slapp
banner