Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 18. júní 2013 14:40
Magnús Már Einarsson
Þórður Þórðarson hættur með ÍA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA en þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins.

Þórður óskaði sjálfur eftir að láta af störfum en hann hefur stýrt liði ÍA frá því árið 2009. Hann kom liðinu upp í Pepsi-deildina þar sem liðið náði góðum árangri í fyrra en illa hefur gengið það sem af er þessu tímabili og Skagamenn eru einungis með þrjú stig eftir sjö umferðir.

Ekki er ljóst hver mun taka við af Þórði en næsti leikur ÍA er gegn Breiðabliki í Borgunarbikarnum á fimmtudag.

Yfirlýsing ÍA:
Þórður Þórðarson hefur látið af störfum sem þjálfari hjá Knattspyrnufélagi ÍA að eigin ósk. Þórður tók við liðinu í erfiðri stöðu í fyrstu deild árið 2009, stýrði því til sigurs í fyrstu deild árið 2011 og náði framúrskarandi árangri í Pepsi deildinni árið 2012. Á tímabilinu 2013 hefur verið á brattann að sækja og var það mat Þórðar að rétt væri að nýr þjálfari kæmi að verkefninu á þessum tímapunkti.

Knattspyrnufélag ÍA vill þakka Þórði fyrir störf hans á undanförnum árum, en vinna hans í þágu félagsins hefur verið framúrskarandi og undir hans stjórn hefur liðið færst umtalsvert nær þeim bestu á landinu, sem er eitthvað sem stuðningsmenn félagsins gera kröfu til.

f.h. Knattspyrnufélags ÍA
Ingi Fannar Eiríksson - Formaður
Slapp