Pétur Pétursson sagði við Fótbolta.net að klárt sé að hann muni klára tímabilið sem aðstoðarþjálfari KR, hann sé samningsbundinn félaginu og sé ekki á förum.
Pétur hefur verið orðaður við þjálfarastarf ÍA en hann segir að á þessum tímapunkti allavega sé hann ekki að fara að taka við þessu starfi. Áðan var tilkynnt að Þórður Þórðarson hefur látið af störfum.

Pétur er Skagamaður í húð og hár og er í miklum metum hjá félaginu eftir að hafa verið einn besti leikmaður sem leikið hefur í búningi þess.
Meðal annarra nafna sem nefnd hafa verið í umræðunni eru Kristján Guðmundsson og Zoran Miljkovic. Kristján vildi ekkert tjá sig um málið þegar Fótbolti.net hafði samband og ekki hefur náðst í Zoran Miljkovic.