„Þetta kemur bara til vegna árangurs liðsins í sumar," segir Þórður Þórðarson sem hefur stigið frá borði sem þjálfari ÍA. Liðinu hefur ekki gengið vel það sem af er tímabili og er aðeins með þrjú stig.
„Ég er þjálfarinn og ég ber ábyrgð á gengi liðsins. Ég tel það hagur liðsins ef þeir geta náð í góðan mann sem geti snúið við árangrinum."
Hvenær kom það fyrst upp í huga hans að segja starfi sínu lausu?
„Þetta kom fyrst upp í hugann hjá mér eftir Stjörnuleikinn. Ég ákvað að skoða þetta svo betur eftir KR-leikinn. Eftir þann leik tók ég svo alla nóttina í að velta því fram og til baka hvað væri best fyrir lið. Eftir að hafa hugsað þetta taldi ég best fyrir liðið að finna einhvern annan á þessum tímapunkti."
Drulluósáttir með stigafjöldann
ÍA tapaði 4-2 fyrir KR og voru margir mjög jákvæðir puntar við spilamennsku Skagaliðsins í þeim leik.
„Það voru í raun bara tíu mínútur í þeim leik sem voru slakar af okkar hálfu. Það var samt svekkjandi að fá ekkert út úr leiknum, það er það sem þarf að gerast. Við erum drulluósáttir með að vera ekki komnir með fleiri stig. Svona er þetta bara," segir Þórður.
Ingi Fannar Eiríksson, formaður knattspyrnufélagsins ÍA, sagði við Fótbolta.net fyrr í dag að stjórn félagsins hafi reynt að telja Þórði hugvarf.
„Þeir spurðu mig bara hvort ég vildi ekki hugsa þetta lengur, það var allt og sumt sem þeir spurðu. Það var ekkert meira á bak við það. Ég sagðist vera búinn að velta þessu nægilega lengi fyrir mér," segir Þórður.
Tek hagsmuni ÍA fram yfir mína eigin
Þórður er alls ekki hættur í þjálfun og hefur áhuga á að starfa áfram við þjálfun í framtíðinni.
„Það er ekki spurning, þetta er hrikalega gaman. Það hefur gengið fínt hjá mér. Þetta er fjórða árið í starfinu og þetta er í raun fyrsta bakslagið af einhverju viti. Ég tel að þetta sé best fyrir liðið og ég tek hagsmuni knattspyrnufélagsins ÍA fram yfir mína eigin. ÍA á það stóran hluta í hjarta mínu."
Þórður getur gengið beinn í baki frá borði. „Ég skammast mín alls ekki fyrir þann tíma sem ég hef verið með liðið og ég get borið höfuðið hátt með það. Þarna eru strákar sem hafa bætt sig alveg helling og við höfum náð flottum árangri. Við stóðum okkur frábærlega þegar við stútuðum 1. deildinni og árið í fyrra var mjög gott," segir Þórður Þórðarson.



