mán 28. nóvember 2016 22:38
Magnús Már Einarsson
Iain Williamson áfram hjá ÍA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoski miðjumaðurinn Iain Willamson mun leika áfram með ÍA í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Williamson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍA en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Hinn 28 ára gamli Williamson var á láni hjá ÍA frá Víkingi R. í sumar.

Williamson var fastamaður í liði ÍA í sumar en hann spilaði sautján leiki í Pepsi-deildinni.

Árið 2012 kom Williamson til Grindavíkur frá Skotlandi en ári síðar á leið hans í Val.

Fyrir ári síðan samdi Williamson við Víking en hann fór síðan til ÍA á láni síðastliðið vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner