Kasper Hjulmand, þjálfari Nordsjælland, hrósaði markverðinum Rúnari Alex Rúnarssyni í hástert eftir 2-2 jafntefli gegn SønderjyskE á föstudag.
„Við erum hrikalega ánægðir með Alex. Hann er að verða mjög góður og hann passar frábærlega í leikstíl okkar," sagði Hjulmand.
„Hann elskar aðferðafræði okkar og hann passar vel inn í hana því við viljum vera með markvörð sem er hægt að spila á. Hann átti tvær frábærar vörslur gegn SønderjyskE en hann var einnig öruggur í öðrum aðgerðum."
Hjulmand hrósaði hinum 22 ára gamla Rúnari einnig fyrir mikla vinnusemi á æfingum með markmannsþjálfaranum Inaki. „Þeir leggja mjög hart að sér á æfingum á hverjum degi," sagði Hjulmand.
Athugasemdir