Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 06. nóvember 2017 06:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Schneiderlin og Mirallas reknir af æfingu Everton
Schneiderlin hefur ekki náð að sýna sitt sanna andlit hjá Everton
Schneiderlin hefur ekki náð að sýna sitt sanna andlit hjá Everton
Mynd: Getty Images
Morgan Schneiderlin og Kevin Mirallas, leikmenn Everton voru reknir af æfingu félagsins á laugardag samkvæmt heimildum Sky.

Everton hefur farið afar illa af stað á tímabilinu en búist var við miklu af liðinu í upphafi tímabils.

Nú þegar er búið að reka Ronald Koeman frá félaginu.

Schneiderlin og Mirallas voru reknir af æfingu af bráðabirgðastjóra félagsins, David Unsworth fyrir að sýna of lítinn áhuga á æfingunni.

Báðir leikmennirnir eru orðaðir frá félaginu í janúarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner