Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 13. júní 2018 08:24
Magnús Már Einarsson
Mynd: Liverpool verður í fjólubláum varabúning
Mynd: Liverpool
Liverpool verður í fjólubláum varabúningum á næsta tímabili en félagið frumsýndi búningana í dag.

Búninginn má sjá hér til hliðar.

Um er að ræða nýjan lit á varabúningi en á nýliðnu tímabili var liðið í hvítum varabúningi.

Liverpool hefur ekki verið í fjólubláum varabúningum undanfarin ár og því kemur valið nokkuð á óvart.

Liverpool spilar áfram í treyjum frá New Balanace á næsta tímabili.

Varabúningur markvarða Liverpool verður síðan grænn á næsta tímabili.

Smelltu hér til að skoða búninginn betur á heimasíðu Liverpool
Athugasemdir
banner
banner