Brasilíski kantmaðurinn Malcom var svo gott sem genginn til liðs við Roma og átti að gangast undir læknisskoðun á morgun, þriðjudag.
Malcom er leikmaður Bordeaux í Frakklandi og stöðvaði félagið skiptin til Roma vegna tilboðs frá öðru félagi. Flugið átti að fara af stað í kvöld.
Ítalski fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir félagið sem um ræðir vera Barcelona. Malcom er sagður frekar vilja fara þangað en til Ítalíu.
Bordeaux hafði samþykkt tilboð frá Roma sem hljóðaði upp á 36 milljónir evra í heildina.
Svo virðist sem stuðningsmenn Roma hafi fagnað of fljótt. Hér fyrir neðan er hægt að sjá mynd af þeim bíða eftir nýju stjörnunni á flugvellinum.
Regardez ça, c’est incroyable. Les tifosi de la #Roma attendaient déjà #Malcom à l’aéroport ! Via @SkySport pic.twitter.com/tfzztLiRfL
— GuillaumeMP (@Guillaumemp) July 23, 2018
Sky Italy: Major twist in Malcom transfer. Bordeaux have denied Malcom permission to fly to Italy tonight after £32m deal was agreed with Roma. Barcelona now making late move. Roma fans already waiting for Malcom at Rome airport
— Kaveh Solhekol (@SkyKaveh) July 23, 2018
Athugasemdir