Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, tekur út leikbann á morgun þegar Valur leikur seinni leik sinn gegn Santa Coloma í forkeppni Evrópudeildarinnar.
„Ég verð uppi í stúku og fylgist með þar. Það er bara eins og það er," sagði Ólafur við Fótbolta.net sem kíkti á æfingu Valsmanna í dag.
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, verður við stjórnvölinn á hliðarlínunni á morgun en með honum verður Pétur Pétursson, fyrrum aðstoðarmaður Ólafs með landsliðið.
„Ég treysti Bjössa 100% fyrir þessu en það er betra að vera tveir saman," sagði Ólafur.

Valur tapaði fyrri leiknum og er því í smá brekku fyrir seinni leikinn.
„Ég held að við séum vel undirbúnir. Við erum 1-0 undir og þurfum að nálgast leikinn af varfærni líka því við megum ekki fá á okkur mark. Við verðum tilbúnir á morgun. Við höfum verið undir áður og erum núna á heimavelli svo ég óttast ekkert."
„Við spiluðum ekki vel úti og fengum það í bakið. Vonandi snúum við því við á morgun. Við teljum okkur vera betri en þeir. Við þurfum fyrst og fremst að spila okkar fótbolta," sagði Ólafur en hann segir að allir leikmenn Vals séu heilir og klárir í slaginn fyrir leikinn.
Valur hefur ekki skorað í tveimur leikjum í röð.
„Nei það er ekkert áhyggjuefni. Það gerist hjá mörgum liðum. En vonandi skorum við á morgun."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir