Liverpool hefur sent lögreglu myndband þar sem Mohamed Salah sést vera í símanum undir stýri.
Myndbandið birtist á netinu í gær en Salah er þá í símanum í umferðinni þegar aðdáendur hópast að bíl hans.
Liverpool ákvað af fyrra bragði að senda lögreglu myndbandið með útskýringum á hegðun Salah, í von um að hann fái mildari refsingu.
„Félagið hefur ákveðið eftir spjall við leikmanninn að senda lögreglunni í Merseyside myndbandið og útskýra hvernig það kom til," sagði talsmaður Liverpool.
Athugasemdir