Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 19. ágúst 2018 09:54
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni sakaður um nauðgun
Fjallað er um málið í enskum blöðum í dag.
Fjallað er um málið í enskum blöðum í dag.
Mynd: Getty Images
Frönsk fyrirsæta segir að sér hafi verið byrlað ólyfjan og nauðgað af leikmanni í ensku úrvalsdeildinni.

Daily Star Sunday fjallar um málið en leikmaðurinn er ekki nafngreindur og konan ekki heldur, af lagalegum ástæðum. Sagt er að leikmaðurinn hafi verið á HM.

Konan segir að nauðgunin hafi verið framin í íbúð hennar í London eftir kvöldgleði í höfuðborginni.

Atburðarásinni er lýst þannig að hún hafi hitt leikmanninn og vin hans á veitingastað. Þau hafi svo farið í íbúð hennar til að gera sig klár fyrir að kíkja á skemmtanalífið. Þau hafi svo farið á skemmtistað þar sem hún hafi fengið sér vodka og tvö glös af kampavíni.

Skyndilega hafi henni farið að líða illa og veikst, þau þrjú héldu aftur í íbúðina þar sem hún hafi farið að sofa. Hún segist svo hafa vaknað þar sem fótboltamaðurinn hafi verið að hafa við hana mök eftir að hafa klætt hana úr nærbuxunum.

Konan tilkynnti nauðgunina til lögreglunnar í París eftir að hún kom til heimalandsins en lögreglustöðin sem hún ætlaði á í London var lokuð.

„Hún vissi að það væri ekki allt eðlilegt því venjulega getur hún drukkið miklu meira en þetta. Hún veiktist skyndilega og varð ringluð, hún var ælandi alla leið aftur í íbúðina," er haft eftir vini hennar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner