Skemmtilegt atvik átti sér stað í vináttulandsleik Brasilíu og Bandaríkjanna í gærkvöldi. Neymar vann aukaspyrnu eftir viðskipti sín við DeAndre Yedlin en sá bandaríski vildi meina að Neymar hefði farið niður of auðveldlega.
Fór hann þá og ræddi við dómarann og sagði einfaldlega: „Horfðir þú ekki á HM?" tvisvar sinnum og fór svo að hlæja.
Fór hann þá og ræddi við dómarann og sagði einfaldlega: „Horfðir þú ekki á HM?" tvisvar sinnum og fór svo að hlæja.
Neymar var mikið á milli tannanna á fólki í sumar fyrir leikaraskap en þessi ósiður var mjög áberandi hjá honum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Svo virðist sem að hann sé ekki ennþá búinn að ná að venja sig af þessu en hann hefur hlotið mikla gagnrýni. Myndband af þessu atviki má sjá hér að neðan.
Yoo Yedlin has me dying over here, making fun of Neymar and his dives.
— Roger Gonzalez (@RGonzalezCBS) September 8, 2018
"Did you watch the World Cup???"
😂😂😂 pic.twitter.com/34P7kKDVSH
Athugasemdir