Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 10. september 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Van der Sar: Kjaftæði að ég sé leið til Man Utd
Mynd: Getty Images
Edin van er Sar, fyrrum markvörður Manchester United, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann sé að fara aftur til félagsins sem nýr tæknilegu ráðgjafi.

Van der Sar starfar í dag sem famkvæmastjóri Ajax en hann hefur verið orðaður við nýja stöðu hjá United sem tæknilegur ráðgjafi.

Sagt er að Manchester United vilji ráða mann í þá stöðu til að hjálpa til við að njósna um leikmenn og sjá um leikmannakaup.

„Ég sá þessar fréttir fyrir nokkrum vikum en fréttin um United er kjaftæði," sagði Van der Sar.

„Ég held að ég sé með tveggja ára samning. Ajax er mitt félag og ég vil vera lengur hér. Við viljum ná velgengni."
Athugasemdir
banner
banner
banner