Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 24. janúar 2019 15:52
Elvar Geir Magnússon
Kærasta Frenkie de Jong: Upplifum draum hans
Frenkie de Jong og unnusta hans.
Frenkie de Jong og unnusta hans.
Mynd: Instagram
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong skrifaði undir samning við Barcelona í gær en hann gengur í raðir félagsins í sumar.

Barcelona er draumafélag De Jong eins og fram kemur í Instagram pósti kærustu hans, Mikky Kiemeney. Hún birtir mynd af þeim skötuhjúum á Nývangi þar sem þau skelltu sér á leik 2015.

„Fyrir þremur árum fórum við á völlinn sem stuðningsmenn og horfðum á leik með draumafélaginu þínu. 23. janúar 2019 var dagurinn þar sem þú gast sagt heiminum að þú værir að fara að spila fyrir draumafélagið þitt. Þú gerðir drauminn að veruleika. Get ekki beðið eftir því að njóta hverrar mínútu af þessu saman. Við erum að fara að lifa drauminn þinn," skrifaði Kiemeney við myndina.

Kiemeney er dugleg að birta myndir af þeim tveimur saman eins og sjá má hér að neðan.

De Jong er 21 árs miðjumaður sem kemur frá Ajax en hann á fimm landsleiki fyrir Holland.

Athugasemdir
banner
banner
banner