Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. mars 2019 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ospina vill vera keyptur til Napoli
Mynd: Getty Images
David Ospina er nýkominn af gjörgæslu eftir að hafa hlotið höfuðmeiðsli í 4-2 sigri Napoli gegn Udinese í gær. Hann fór í sneiðmyndatöku sem kom vel út og ætti markvörðurinn að vera leikhæfur eftir tvær vikur.

„Ég hef ekki getað talað við son minn því hann er enn á gjörgæslu en ég hef fengið staðfestingu frá eiginkonu minni um að honum líður vel," sagði Hernan Ospina við Radio CRC.

Ospina er leikmaður Arsenal en leikur fyrir Napoli á lánssamning. Ljóst er að ítalska félagið þarf að kaupa leikmanninn spili hann ákveðið marga leiki á tímabilinu og vonast Ospina til að vera keyptur yfir.

„Við erum að bíða eftir að hann spili nógu mikið af leikjum fyrir Napoli svo félagið kaupi hann af Arsenal. Honum líður vel í Napolí og vill vera þar áfram. Börnin hans elska að búa þarna og fjölskyldan er hamingjusöm."

Ospina er búinn að spila helming deildarleikja Napoli á tímabilinu og þá spilaði hann alla leiki liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en hefur ekki verið notaður í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner