Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. júlí 2019 15:35
Elvar Geir Magnússon
Róbert Orri framlengir við Aftureldingu - Áhugi frá Pepsi Max
Róbert Orri Þorkelsson.
Róbert Orri Þorkelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding hefur framlengt við sinn efnilegasta leikmann en Róbert Orri Þorkelsson hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir út tímabilið 2020.

Hinn 17 ára gamli Róbert Orri hefur alist upp allan sinn fótboltaferil hjá Aftureldingu og verið fastamaður á miðjunni hjá meistaraflokki undanfarin tvö keppnistímabil.

Í fyrra hjálpaði hann Aftureldingu að vinna 2. deildina og í ár hefur hann leikið vel með liðinu í Inkasso-deildinni.

Róbert er úr öflugum 2002 árgangi hjá Aftureldingu sem varð Íslandsmeistari í 3. flokki í fyrra en hann átti að auki fast sæti í byrjunarliði U17 ára landsliðs Íslands sem fór í lokakeppni EM í vor.

Félög í Pepsi Max-deildinni hafa sýnt Róberti áhuga samkvæmt frétt á heimasíðu Aftureldingar en hann ákvað að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við félagið.

„Það er gríðarlegt fagnaðarefni að Róbert hafi framlengt samning sinn við Aftureldingu. Það er gleðiefni að ungir heimamenn hafi trú á uppbyggingunni sem er í gangi í Mosfellsbæ og vilji taka þátt í henni með okkur. Róbert er efnilegur leikmaður sem hefur verið gaman að fylgjast með í meistaraflokki undanfarin tvö ár og vonandi heldur hann áfram að bæta sig sem leikmaður hér í Mosfellsbæ," sagði Geir Rúnar Birgisson, formaður meistaraflokksráðs Aftureldingar.

Afturelding er í 10. sæti Inkasso-deildarinnar en liðið leikur gegn Víkingi Ólafsvík á útivelli annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner