Real Madrid er búið að gefa út tilkynningu sem segir að Árvalo Arbeloa yfirgefur félagið eftir að hafa samið um starfslok.
Arbeloa var í starfi sem aðalþjálfari varaliðsins þegar hann var ráðinn sem bráðabrigðaþjálfari aðalliðsins. Bráðabirgðasamningurinn rann út án þess að Arbeloa fengi ráðningu en Spánverjinn hefur ákveðið að leita á önnur mið. Hann vill ekki snúa aftur í sitt gamla starf að þjálfa varaliðið.
Real Madrid þakkar Arbeloa fyrir vel unnin störf enda stóð hann sig mjög vel sem þjálfari varaliðsins eftir að hafa leikið fyrir Real Madrid stóran hluta atvinnumannaferilsins.
„Real Madrid verður ávalt heimili Álvaro Arbeloa og fjölskyldu hans. Við óskum þeim mikillar lukku með næsta kafla lífsins," segir meðal annars í tilkynningunni.
Þetta þýðir að Portúgalinn José Mourinho verður loksins kynntur til leiks sem nýr aðalþjálfari Real Madrid á næstunni.
29.05.2026 15:35
Mourinho búinn að skrifa undir samning við Real Madrid - Kynntur eftir kosningar
Comunicado Oficial: Arbeloa.
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) June 9, 2026



