,,Ég naut tímans á Íslandi. Ég var þar frá 1998-2001 og þessi tími er einn sá besti í mínu lífi,” sagði hinn skoski David Winnie þegar að Fótbolti.net hafði samband við hann á dögunum.
Winnie lék með KR hér á landi frá 1998-2000 og þjálfaði liðið síðan 2001. Á fyrsta ári sínu var hann valinn leikmaður ársins og 1999 og 2000 varð hann Íslandsmeistari með KR. Winnie naut tímans hjá KR og hefði viljað hafa hann lengri.
,,Án efa. Það var leiðinlegt að ferill minn sem leikmaður var að klárast. Þjálfaraferill minn á Íslandi var síðan mjög taugastrekkjandi því að ég var lengst af að reyna að bjarga KR frá falli."
,,Ég elskaði KR. Þeir voru með frábært lið og okkur gekk mjög vel þegar að ég var þar. Ég kunni vel við íslenska fótboltann þó að hann sé mjög ólíkur þeim breska þar sem að tæknin er ekki jafn góð."
,,Ég myndi klárlega mæla með íslenska boltanum fyrir aðra erlenda leikmenn og ég hef hjálpað til við að koma leikmönnum til Íslands frá Skotlandi."
Starfar sem íþróttalögfræðingur í dag:
Eftir að hafa þjálfað KR 2001 stýrði Winnie liði Dumbarton í tæpt ár áður en hann sneri sér að öðrum störfum.
,,Ég byrjaði að læra lögræði í Skotlandi árið 2001 og árið 2005 flutti ég til Hertforshire á Englandi til að halda áfram námi mínu en ég bý þar núna ásamt eiginkonu minni. Ég fékk nýlega starf sem íþróttalögfræðingur hjá stóru evrópsku íþrótta/fótbolta lögfræði fyrirtæki sem heitir Hammonds og er með skrifstofur í London."
Winnie hefur einnig haldið góðu sambandi við fólk á Íslandi enda er eiginkona hans íslensk.
,,Ég giftist íslenskri konu í Dómkirkjunni í Reykjavík í júlí 2008. Ég og eiginkona mín, Heiða María Gunnarsdóttir, ferðumst reglulega frá heimili okkar í Hertfordshire til Íslands til að hitta fjölskyldu okkar og vini. Ég hef verið í sambandi við liðsfélaga mina úr KR og núna á ég líka stórfjölskyldu í Reykjanvík. Við ferðumst til Íslands nokkrum sinnum á ári og eyðum alltaf jólunum með fjölskyldunni í Reykjavík."
Kíkir á völlinn á Íslandi:
Winnie kíkir að sjálfsögðu á völlinn þegar að hann er staddur á Íslandi og þá fylgist hann einnig vel með Pepsi-deildinni.
,,Þegar að ég kem til Íslands reyni ég að fara á einn eða tvo leiki ef það er möguleiki. Ég fylgist með íslenskum fótbolta og reyni að koma bestu íslensku leikmönnunum til félaga í Evrópu í samstarfi við íslenska umboðsmenn."
,,Eiginkona mín heldur líka með Fram og hún hefur gaman að því að segja mér frá því þegar að Fram vinnur KR, sem gerist sem betur fer ekki það oft,” sagði Winnie léttur í bragði að lokum.



