Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 16. desember 2009 08:00
Magnús Már Einarsson
Hvar eru þeir nú? Erlendir leikmenn á Íslandi (Seinni hluti)
Lee Sharpe lék með Grindavík árið 2003.
Lee Sharpe lék með Grindavík árið 2003.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allan Borgvardt sló í gegn með FH.
Allan Borgvardt sló í gegn með FH.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mounir Ahandour lagði skóna á hiluna eftir að hafa leikið með Grindvíkingum.
Mounir Ahandour lagði skóna á hiluna eftir að hafa leikið með Grindvíkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Íslensk félög höfðu samband við Nenad Zivanovic í vor en hann var þá búinn að semja við félag í næstefstu deild í Færeyjum.
Íslensk félög höfðu samband við Nenad Zivanovic í vor en hann var þá búinn að semja við félag í næstefstu deild í Færeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Peter Gravesen leikur núna með liði á Kýpur.
Peter Gravesen leikur núna með liði á Kýpur.
Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Rene Carlsen samdi við FC Frederica í dönsku 1.deildinni en hefur ekkert getað spilað vegna meiðsla.
Rene Carlsen samdi við FC Frederica í dönsku 1.deildinni en hefur ekkert getað spilað vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Margir erlendir leikmenn hafa leikið á Íslandi í gegnum tíðina og Fótbolti.net hefur tekið saman yfir lista hvar sumir af þessum leikmönnum eru niður komnir í dag.

Fyrri hlutinn birtist í síðustu viku og nú er komið að síðari hlutanum sem er talsvert lengri. Ef að einhverjar upplýsingar eru vitlausar eða ef lesendur hafa upplýsingar um leikmenn sem vantar á listann þá má endilega senda skilaboð á [email protected].

Fyrri hluti listans


Lee Sharpe (Grindavík 2003)
Það vakti heimsathygli þegar að Lee Sharpe ákvað að ganga í raðir Grindvíkinga árið 2003, þá 32 ára að aldri. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United lék nokkra leiki með Grindavík áður en hann sagðist vera hættur í fótbolta. Sharpe lék nokkra leiki með Hoobrook Crown í sunnudagsdeildinni á Englandi árið 2004 áður en hann skrifaði undir hjá utandeildarliðinu Garforth Town en engum sögum fer af spilamennsku hans þar.

Richard Keogh (Víkingur R. 2004)
Þessi 23 ára gamli varnarmaður kom til Víkingi á láni frá Stoke árið 2004. Keogh fór til Bristol City árið 2005 en í kjölfarið var hann lánaður til Wycombe Wanderers, Huddersfield Town, Chesterfield og Carlisle. Í ágúst 2008 ákvað Carlisle síðan að kaupa Keogh og hann leikur núna með liðinu í þriðju efstu deild á Englandi.

Jermaine Palmer (Víkingur R. 2004)
Palmer kom til Víkings á sama tíma og Keogh. Undanfarin ár hefur hann flakkað á milli liða í ensku neðri deildunum og síðan utandeildinni en hann hefur komið við á mjög mörgum stöðum. Palmer hefur leikið með Grimsby, Scarborough, York City, Alfreton Town, Grantham Town, Hinckley United, Halesowen Town, Worksop Town, Weymouth og Corby Town. Í sumar samdi hann síðan við Boston Town og hann leikur þar núna.

Allan Borgvardt (2004-2005)
Allan Borgvardt sló í gegn í íslenska boltanum þegar að hann lék með FH frá 2003-2005. Borgvardt raðaði inn mörkunum og var valinn besti leikmaður efstu deildar árið 2003 og 2005. Í ágúst 2005 samdi Borgvardt við Viking í Noregi en hann stoppaði stutt við og gekk til liðs við Bryne síðar það ár. Borgvardt er ennþá í herbúðum Bryne en liðið leikur í næstefstu deild í Noregi.

Kenneth Gustafsson (Keflavík 2005-2008)
Þessi sænski varnarmaður lék fjögur tímabil með Keflavík áður en hann samdi við IFK Mariehamn í finnsku úrvalsdeildinni fyrir ári síðan. Gustafsson hefur skorað 2 mörk í 23 leikjum með Mariehamn.

Christian Christiansen (Fylkir 2005-2007)
Danski framherjinn Christian Christiansen fór til FC Hjörring í heimalandi sínu eftir að hann yfirgaf Fylki árið 2007. Þar hefur hann skorað eitt mark i fimm leikjum það sem af er í dönsku 2.deildinni á þessu tímabili.

Dalibor Pauletic (KR 2005-2006)
Króatíski varnarmaðurinn Dalibor Pauletic lék með KR árið 2005 og 2006 en fór frá félaginu í maí 2007. Pauletic gekk i raðir NK Istra 1961 í heimalandi sínu en hann er fyrirliði þar. Pauletic lék með sama félagi áður en hann gekk til liðs við KR.

Rógvi Jacobsen (KR 2005-2006)
Rógvi gekk til liðs við HB í Færeyjum eftir dvöl sína hjá KR og árið 2008 fór hann til IL Hödd í Noregi. Hann stoppaði þar í eitt ár áður en hann fór aftur til Færeyja þar sem að hann leikur með IF Fuglafjörður.

Carl Dickinson (Víkingur (2006)
Varnarmaðurinn Carl Dickinson kom til Víkings á láni frá Stoke árið 2006 en stoppað mjög stutt við. Dickinson er ennþá á mála hjá Stoke en hann er sem stendur á mála hjá Barnsley í ensku Championship deildinni þar sem að hann leikur með Emil Hallfreðssyni. Dickinson hefur einnig farið til Blackpool og Leeds á láni á ferli sínum.

Mounir Ahandour (Grindavík 2005-2007)
Franski framherjinn Mounir Ahandour yfirgaf Grindavík árið 2007 og ákvað í kjölfarið að leggja takkaskóna á hilluna. Ahandour, sem er 26 ára, býr í dag í Frakklandi.

Allan Dyring (FH 2006-2007 – Fylkir 2008)
Danski framherjinn Allan Dyring yfirgaf Fylki fyrir rúmu ári síðan. Hann gekk í kjölfarið til liðs við Aabenraa sem leikur í sjöundu efstu deild í Danmörku.

Barry Smith (Valur 2006-2008)
Barry Smith var orðaður við Val og FH síðastliðið vor en ekkert varð af því að hann kæmi aftur til Íslands. Þessi 35 ára gamli varnarmaður lék með Val í þrjú ár en núna leikur hann með Brechin City í þriðju efstu deild í Skotlandi. Hann er að auki þjálfari hjá U19 ára liði Dundee United.

Nenad Zivanovic (Breiðablik 2006-2008)
Eftir að hafa farið frá Breiðablik fyrir rúmu ári þá gekk Zivanovic til liðs við FC Sumadija í Serbíu. Zivanovic var í sex mánuði þar en í júní samdi hann við VB/Sumba sem leikur í næstefstu deild í Færeyjum. Zivanovic lék með VB/Sumba 2002 og 2005 en í ár hjálpaði hann liðinu að sigra 1.deildina í Færeyjum. Í október og nóvember lék Zivanovic aftur með FC Sumadija en óvíst er hvað tekur við hjá honum núna. ,,Ég er samningslaus en ég er að tala við félög í Færeyjum. Breiðablik og Stjarnan höfðu samband við mig á síðasta tímabili en það var of seint því að ég var búinn að semja í Færeyjum,” sagði Zivanovic við Fótbolta.net.

Srdjan Gasic (Breiðablik 2006-2008)
Þessi 34 ára gamli varnarmaður lagði skóna á hilluna eftir að hafa hætt hjá Breiðablik fyrir ári.

Oliver Risser (Breiðablik 2006)
Risser fór frá Breiðablik um mitt sumar 2006 og fór þá til þýska félagsins Bonner. Eftir stutta dvöl hjá varaliði Hannover fór Risser til Manglerud Star í Noregi. Í sumar fékk Lyn síðan Risser á láni en þessi 29 ára gamli leikmaður á að baki landsleiki með Namibíu.

Peter Gravesen (Fylkir 2006-2008)
Peter Gravesen, bróðir Thomas Gravesen, lék með Fylki í þrjú ár áður en hann fór frá félaginu síðastliðið haust. Í kjölfarið samdi hann við APEP Pitsilia sem leikur í úrvalsdeildinni á Kýpur.

Dennis Bo Mortensen (Valur 2007-2008)
Dennis Bo lék með Val sumarið 2007 en meiddist illa rétt áður en tímabilið hófst árið 2008. Í febrúar síðastliðnum samdi hann við danska 1.deildarliðið Lyngby en hann stoppaði aðeins í nokkra mánuði þar. Í ágúst samdi hann við B93 sem leikur í 2.deildinni í Danmörku og þar leikur hann núna.

Rene Carlsen (Valur 2007-2008)
Í byrjun árs samdi Rene Carlsen við FC Fredericia í dönsku 1.deildinni. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Carlsen en hann hefur ekki ennþá leikið sinn fyrsta leik með Fredericia. Nýlega var hann í viðtali á heimasíðu félagsins þar sem að hann lýsir dvöl sinni á Íslandi. Þar segir hann einnig að efsta deild á Íslandi sé svipuð að styrkleika og danska 1.deildin.

Nenad Petrovic (Breiðablik 2007-2008)
Petrovic samdi við FC Lokomotiv Taskent frá Úsbekistan eftir að hann yfirgaf Breiðablik. Eftir því sem Fótbolti.net kemst næst er hann núna að bíða eftir svari frá félaginu um það hvort hann fái nýjan samning þar.

Marco Kotilainen (Keflavík 2007)
Eftir eins árs dvöl hjá Keflavík fór Kotilainen til Gunnilse í sænsku 2.deildinni. Á dögunum gerði hann síðan þriggja ára samning við Assyriska FF sem leikur í næstefstu deild í Svíþjóð.

Patrik Redo (Fram 2007 – Keflavík 2008)
Redo fór frá Keflavík fyrir rúmu ári síðan og í kjölfarið samdi hann við Jönköpings Sodra í heimalandi sínu Svíþjóð. Þar skoraði hann fjögur mörk í átján leikjum í sænsku 1.deildinni á nýliðnu tímabili.

Tomasz Stolpa (Grindavík 2008)
Pólski framherjinn Tomasz Stolpa kom til Grindavíkur frá Gefle í Svíþjóð. Eftir eitt sumar á Íslandi sýndu lið frá Grikklandi og Kýpur honum áhuga en Stolpa samdi að lokum við Qäbälä í Azerbaijan þar sem að hann spilar núna.

Mitja Brulc (HK 2008)
Þessi slóvenski framherji lék með HK árið 2008 en hann leikur núna með FC Koper í heimalandinu.
Slapp
banner