Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 21. desember 2009 07:33
Magnús Már Einarsson
Allan Borgvardt: Mun kannski spila aftur á Íslandi
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Á dögunum fór Fótbolti.net yfir það hvar erlendir leikmenn sem hafa leikið á Íslandi eru núna niður komnir. Í tilefni þess ákvað Fótbolti.net að heyra í Allan Borgvardt sem varð tvívegis Íslandsmeistari með FH auk þess sem að hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins árið 2003 og 2005.

,,Ég kunni mjög vel við mig á Íslandi. Það var frábært að fá tækifæri á að komast til Íslands því að ég átti í erfiðleikum með að sanna mig í dönsku deildinni og þurfti því að prófa eitthvað annað. Þetta var frábær reynsla bæði íþróttalega séð og fyrir mig persónulega," sagði Allan þegar að Fótbolti.net ræddi við hann á dögunum.

Allan fór frá FH til Viking í Noregi í ágúst 2005. Síðar sama ár fór hann til Bryne en hann leikur núna með liðinu í norsku 1.deildinni.

,,Ég held að þetta hafi verið rétti tíminn að fara frá FH ef ég ætti að fara einhvern tímann. Við höfðum unnið titilinn tvisvar í röð og staðið okkur vel í Evrópukeppni. Ég hafði möguleika á að leika aftur í betri deild og var spenntur fyrir því. Það var aftur á móti erfitt að fara því að ég átti góðan tíma hér."

Bryne endaði í áttunda sæti í norsku 1.deildinni í ár en Allan segir að deildin sé ekki ólík efstu deild á Íslandi.

,,Ég held að það sé enginn munur á bestu liðunum á Íslandi og liðunum í deildinni sem ég spila í. Fótboltinn í norsku 1.deildinni er oft varnarsinnaðari. Það er meira hugsað um að verjast en sækja."

Allan varð eins og fyrr segir tvívegis Íslandsmeistari með FH og hann lék einnig á móti sterkum leikmönnum í deildinni hér heima.

,,Ég spilaði í þrjú tímabil á Íslandi og spilaði með og á móti mörgum góðum leikmönnum. Veigar Páll Gunnarsson, Heimir Guðjónsson, Tryggvi Guðmundsson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Sverrir Garðarsson eru leikmenn sem koma upp í hugann."

Þrátt fyrir að hafa síðast leikið hér á landi árið 2005 þá fylgist Allan ennþá vel með hér á landi.

,,Ég hef fylgst með íslenska fótboltanum síðan að ég fór. Ég skoða reglulega Fótbolta.net til að fylgjast með."

,,Ég er líka í sambandi við menn á Íslandi. Sumir komu meira segja í brúðkaupið mitt fyrir einu og hálfu ári og ég var stoltur af því."

,,Ég hef samt ekki komið aftur til Íslands síðan að ég fór þaðan. Ég hef oft viljað koma en ég á tvö börn sem vilja hitta ömmu sína og afa alltaf þegar að það eru frí. Næsta sumar verður langt sumarfrí og ég vonast til að geta kíkt þá."


Allan útilokar ekki að spila aftur á Íslandi í framtíðinni. ,,Ég mun kannski gera það," sagði þessi geðþekki Dani að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
David Winnie: Einn besti tími lífs míns var á Íslandi
Hvar eru þeir núna? Erlendir leikmenn sem léku á Íslandi
Hvar eru þeir nú? Erlendir leikmenn á Íslandi (Seinni hluti)
Slapp
banner