Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 12. maí 2010 12:00
Magnús Már Einarsson
1.deild LU: Aldrei ánægður að sitja og fylgjast með á bekknum
Dofri skorar í leiknum í fyrrakvöld.
Dofri skorar í leiknum í fyrrakvöld.
Mynd: Gunnlaugur Júlíusson
Dofri í leik með öðrum flokki KR.
Dofri í leik með öðrum flokki KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Dofri Snorrason var sprækur á kantinum hjá Víkingi R. þegar liðið sigraði Fjarðabyggð 2-1 í fyrrakvöld. Dofri skoraði bæði mörk Víkings í leiknum en hann er leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net. Dofri segir að tilnefningin komi nokkuð á óvart.

Dofri Snorrason
Aldur: 19 ára
Deildarleikir með Víkingi: 1, 2 mörk.
,,Mér fannst ég sjálfur eiga fínan leik og hef eiginlega ekkert séð eða heyrt um frammistöðu annara leikmanna eftir 1. umferðina, hef meira verið að skoða úrslitin úr leikjunum. Þannig þetta var ekkert sem ég var að reikna með að fá eða vonast eftir. En að sjálfsögðu er alltaf gaman að fá að heyra það ef maður er að standa sig vel, ég neita því ekki," sagði Dofri við Fótbolta.net.

,,Þetta var frábær byrjun, það er alltaf sterkt að byrja fyrsta leik í móti með sigri og mjög gott að liðið fylgdi því sem sett var upp svona mest megnis. Þetta er gott veganesti inn í Fjölnisleikinn á föstudaginn sem verður hörkuleikur og við þurfum klárlega að lyfta leik okkar upp á ennþá hærra plan ef við ætlum að fá 3 stigin þar."

Dofri kom til Víkings á láni á dögunum og kom beint inn á hægri kantinn í fyrsta leik í fjarveru Marteins Briem og Péturs Svanssonar sem eru báðir á meiðslalistanum.

,,Ég var náttúrlega fenginn rétt fyrir mót og er fyrst og fremst tekinn inn út af því að Pétur og Marri meiðast. Ég svona reiknaði með því að hann myndi stilla mér upp í byrjunarliðinu."

Dofri lék með KR á undirbúningstímabilinu en sá ekki fram á að fá tækifæri í sumar. Því fékk hann að fara til Víkings á láni.

,,Maður er auðvitað aldrei neitt ánægður að sitja og fylgjast með á bekknum og er það megin ástæðan fyrir því að ég kom í Víkina, sem sagt að fá að spila. En ég fékk að spila fullt bæði í Lengjubikarnum og Reykjavíkurmótinu, það hefur reynst mér dýrmætt og mér finnst ég hafa bætt mig heilmikið í fótbolta eftir að hafa verið með KR heilt undirbúningstímabil."

,,En ég fer ekki leynt með það að mér finnst að ég hafi átt að vera meira inn í myndinni hjá Loga (Ólafssyni) en raun bar vitni. Núna er ég kominn í annað verkefni með Víking og er hættur að spá í þessum hlutum."


Dofri kann vel við sig í Víkingi og hann hefur aðlagast hópnum vel þrátt fyrir að hafa þekkt lítið til liðsins áður en hann kom.

,, Möttökurnar hafa verið til fyrimyndar enda frábær hópur. Þessi hópur er skemmtileg blanda af ungum og gömlum leikmönnum og ávallt mikil stemmning innan hópsins. Ég þekkti fáa áður en ég kom en kannast nú við flesta ungu strákanna sem maður hefur spilað við í gegnum tíðina og svo æfði ég með Kidda Magg eitt tímabil hjá KR. Maður er að komast betur og betur inn í hópinn með hverri æfingu sem líður."

Víkingi er spáð öðru sæti í sumar og Dofri telur að það sé raunhæft að liðið komist upp um deild. Sjálfur stefnir hann á að standa sig vel og bæta sig fyrir næsta tímabil.

,,Mitt markmið er að verða betri í fótbolta á þessu tímabili og gera mig kláran fyrir það að spila á hærra leveli næsta sumar hvort sem það verður með KR, Víking eða einhverjum öðrum klúbb. Markmið okkar hjá Víkingi er að komast upp í efstu deild þar sem þessi klúbbur á klárlega heima og þegar maður lítur yfir hópinn virðist það markmið alls ekki óraunhæft," sagði Dofri að lokum.
Slapp
banner
banner
banner