Aron Már Smárason framherji Breiðabliks sem er í láni hjá Fjarðabyggð er leikmaður 2. umferðar í 1. deild karla hjá Fótbolta.net. Aron skoraði þrennu í sínum fyrsta leik fyrir liðið er það vann ÍA 3-2 fyrir Austan.
Aldur: 26 ára
Deildarleikir með Fjarðabyggð: 1, 3 mörk.
,,Ég mætti bara beint inn í klefa og tók í höndina á strákunum, svo var farið yfir smá leikskipulag og beint inná. Þetta gekk nokkuð vel."
,,Það gekk vel, liðið spilaði líka vel. Þetta var skemmtilegur leikur, bæði lið að spila fótbolta og að sækja. Þetta var opinn leikur, mikið af færum."
Aron gekk í raðir Fjarðabyggðar á föstudag eftir að hafa rætt við Ólaf Kristjánsson þjálfara Breiðabliks.
,,Ég talaði við Óla á miðvikudaginn, það er erfitt að komast að hjá Blikunum þeir eru með gott lið og góða framherja. Það var ekkert annað í stöðunni en að fara eitthvað annað og fá að spila. Ég get ekki verið annað en en ánægður með þessa ákvörðun," sagði Aron en býst hann við því að fara aftur til Blika á þessu tímabili.
,,Ég veit nú ekkert um það, ef það kæmi til greina myndi ég skoða það. Maður verður að einbeita sér að næsta leik og sjá hvað gerist ."
,,Þetta snýst um það að sanna mig fyrir mér sjálfum, að sjálfsögðu líka fyrir þjálfara Breiðabliks, þeim hjá Fjarðarbyggð og nánast öllum."
,,Ég vissi það að Fjarðabyggð er með gott lið, hafa verið að halda sér uppi í 1. deildinni í mörg ár. Ég vissi að þetta væri fínt lið og kannaðist við nokkra stráka frá því fyrir tveimur árum þegar ég var með Njarðvík. Við erum með menn enn eins og Jóa Ben sem er vinstri fót sem er smíðaður úr gulli. Hann var að dæla boltum á mig."
,,Þetta er mikill karakter að koma til baka eftir að hafa lent tvisvar undir. Við héldum skipulagi og þetta er mjög mikilvægur sigur fyrir liðið."
Hann mun þó ekki búa fyrir Austan í sumar heldur æfa með Breiðablik og fljúga í leiki.
,,Ég mun væntanlega æfa með Blikum áfram og fljúga í leiki sem verða á Eskifirði. Svo þegar maður fer í sumarfrí þá dettur maður þangað í tvær vikur og æfir með þeim," sagði Aron að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason


