Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 25. maí 2010 15:14
Magnús Már Einarsson
1.deild LU: Hann fór beint fyrir og virtist ekki ætla að færa sig
Halldór skorar annað mark sitt í leiknum á laugardag.
Halldór skorar annað mark sitt í leiknum á laugardag.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Halldór Arnar Hilmisson, leikmaður Þróttar, er leikmaður þriðju umferðar í fyrstu deild karla. Halldór skoraði tvívegis og var mjög öflugur þegar Þróttur sigraði Fjarðabyggð 3-2 á laugardag.

Halldór Arnar Hilmisson
Aldur: 32 ára
Deildarleikir með Þrótti: 91, 11 mörk.
Fyrri félög: FH, Fram, Fylkir, Valur
,,Ég var að mestu leyti ánægður með leikinn," sagði Halldór við Fótbolta.net í dag.

,,Við sköpuðum okkur mörg færi og hefðum alveg getað unnið stærra. Þeir minnkuðu muninn í 2-1 og 3-2 og það getur allt gerst þegar það er bara eitt mark á milli."

Halldór skoraði tvö falleg mörk í leiknum en það fyrra gerði hann með þrumuskoti fyrir utan vítateig. Halldór var þó í efa um að sendingin myndi rata á hann fyrir markið þar sem Gunnar Jarl Jónsson, dómari leiksins var á svipuðum slóðum.

,,Hann fór beint fyrir og virtist ekki ætla að færa sig, það var smá sena á milli okkar. Síðan stökk hann frá og ég skaut og þetta heppnaðist, ég hitti boltann vel og hann var ágætlega fastur."

Þróttur er með sex stig eftir fyrstu þrjár umferðir sumarsins en eftir tap gegn KA í fyrsta leik er liðið búið að leggja bæði HK og Fjarðabyggð.

,,Fyrsti leikurinn tókst ekki alveg nógu vel hjá okkur en síðan erum við búnir að vinna tvo og það er gott."

,,Við stefnum á að vera í toppbaráttunni eins og mörg lið í þessari deild, það vill enginn vera í fyrstu deild, það stefna margir upp. Þróttur datt úr efstu deild og að sjálfsögðu ætlum við að reyna að komast aftur upp."

Halldór kom sjálfur aftur til Þróttar í vetur eftir að hafa leikið með Fylki í þrjú ár.

,,Þetta var eitthvað sem kom upp og þetta var spurning um að fara eða ekki. Á endanum ákvað ég að prófa þetta. Palli Einars og fleiri voru þarna þannig að maður ákvað að kíkja á þetta. Ég skildi í góðu við Fylki og Þórðar."

Nokkrir fleiri leikmenn eru komnir aftur í Þrótt eftir dvöl hjá öðrum félögum en um er að ræða leikmenn sem Hallur lék með fyrir nokkrum árum.

,,Ingvar Óla er kominn og ég og svo eru Eysteinn (Pétur Lárusson), Hallur (Hallsson), Ingvi (Sveinsson) og fleiri þarna þetta eru gamlir félagar að hittast."

Þjálarinn er einnig gamalreyndur Þróttari en það er Páll Einarsson sem lék líka með Halli hjá liðinu á sínum tíma

,,Hann spilaði með okkur einu sinni og nú er hann að stjórna okkur sem er af hinu góða," sagði Hallur að lokum.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner
banner
banner