Jóhann Helgi Hannesson (Þór) er leikmaður 4.umferðar í 1.deild karla
Jóhann Helgi Hannesson, framherji Þórs, átti stórleik þegar liðið sigraði Víking R. 4-3 í ótrúlegum leik í fjórðu umferð fyrstu deildar karla síðastliðið föstudagskvöld. Þórsarar lentu 2-0 undir snemma leiks og voru 3-2 undir fyrir viðbótartímann en þar skoraði liðið tvívegis. Jóhann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt en hann er leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net.
Aldur: 20 ára
Leikir með Þór í fyrstu deild: 38, 8 mörk.
Lið á HM: Brasilía
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Wayne Rooney
,,Fyrri hálfleikur er sá besti sem ég hef tekið þátt í með Þórsliðinu, við spiluðum mjög vel. Í seinni hálfleik datt þetta aðeins niður hjá okkur en þegar þeir skora þetta mark þá stígum við upp og náum að vinna þetta á þrjóskunni."
Jóhann Helgi jafnaði sjálfur þegar ein og hálf mínúta var liðin af viðbótartímanum. Hann lagði síðan upp sigurmarkið fyrir gamla refinn Nenad Zivanovic.
,,Það var hrikalega sætt að sjá hann fara yfir markvörðinn og sjá síðan Nenna klára þetta."
,,Hann er virkilega góður spilari, hann er mjög góður að fá boltann í fætur og hann er með mjög góða yfirsýn. Þetta er virkilega sterkur leikmaður og það er algjör snilld að spila með honum."
Í fyrri hálfleiknum misnotaði Jóhann vítaspyrnu en náði frákastinu og skoraði eftir að Magnús Þormar hafði varið.
,,Ég ætlaði að negla beint á markið en hitti hann svona djöfullega. Ég náði frákastinu svo þetta slapp. Ég reikna samt ekki með að fá að taka næstu vítaspyrnu, ég reikna með að Linta fái að fara á punktinn."
Þórsarar eru eftir sigurinn í þriðja sæti í fyrstu deildinni en þrátt fyrir það ákvað Lárus Orri Sigurðsson að hætta sem þjálfari liðsins í gær og Páll Viðar Gíslason tekur við af honum.
,,Það kom mjög á óvart. Við vissum að það var búið að vera mikið ósætti milli hans og aðalstjórnarinnar en höfðum ekki fengið að vita mikið. Orri reyndi að halda okkur sem mest utan við þetta og í hreinskilni sagt vitum við ekkert um það hvað er í gangi."
,,Við verðum að taka þessu. Fyrst hann sagði upp þá er Palli klárlega langbesti kosturinn í stöðunni til að taka við af honum. Ég hef fulla trú á að við getum haldið áfram í átt að markinu að komast upp."
Lárus Orri gagnrýndi aðalstjórn Þórs harðlega í viðtali á Fótbolta.net eftir tap gegn Leikni R. fyrr í mánuðinum en síðan þá hefur Þórsliðið verið á miklu skriði.
,,Við erum búnir að vinna þrjá leiki síðan þá með markatöluna 11-3 og það er allt búið að ganga upp. Það var tekinn smá fundur eftir þetta og við ákváðum að pæla ekkert í þessu og sýna fólki að við erum góðir í fótbolta."
Lárus Orri var á sínu fimmta ári með Þór en Jóhann Helgi og fleiri leikmenn hafa fengið eldskírn sína í meistaraflokki undir hans stjórn.
,,Ef þú horfir yfir hópinn þá eru fimm eða sex menn sem eru ekki uppaldir í Þór. Annars eru þetta bara við strákarnir sem höfum spilað saman upp alla flokkana. Hann er búinn að byggja þetta lið upp frá grunni og hann á mikla þökk skilið fyrir það. Við strákarnir sem erum að spila núna eru strákar sem hann hefur gefið sénsinn og margir hverjir nýttu hann mjög vel."
Þórsarar stefna á að fara upp í efstu deild í ár og stuðningsmannahópurinn Mjölnismenn gerir allt til að hjálpa þeim í því.
,,Við erum með eitt besta stuðningsmannalið á landinu sem fylgir okkur í alla útileiki og eru alveg brjálaðir. Þeir eru klárlega okkar tólfti maður og standa vel við bakið á okkur. Þeir gefa okkur alltaf aukin kraft, þeir syngja allan leikinn. Við vitum alveg hvað við getum í fótbolta og ef við spilum eins og menn þá getum við klárlega farið alla leið," sagði Jóhann Helgi að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)



