Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 09. júní 2010 08:30
Magnús Már Einarsson
1.deild leikmaður 5.umf: Það eru bjartir tímar í ghettoinu
Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir R.) er leikmaður 5.umferðar
Halldór Kristinn í leiknum í fyrradag.
Halldór Kristinn í leiknum í fyrradag.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Halldór Kristinn Halldórsson var mjög öflugur í vörn Leiknis þegar liðið lagði Þrótt 2-0 í fimmtu umferð fyrstu deildar karla. Halldór Kristinn er leikmaður fimmtu umferðar hér á Fótbolta.net.

Halldór Kristinn Halldórsson
Aldur: 22 ára
Deildarleikir með Leikni: 108, 4 mörk.
Lið á HM: Vona að Serbía verði spútnik liðið í ár. Annars vona ég að England vinni.
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Nemanja Vidic
,,Ég er mjög sáttur. Mér leið vel allan leikinn og þá sérstaklega í seinni hálfleik eftir að við þéttum liðið saman. Þetta var frábær sigur í alla staði," sagði Halldór Kristinn, fyrirliði Leiknis, við Fótbolta.net í gær.

Leiknismenn hafa haldið hreinu í fjórum af fyrstu fimm leikjum sínum í sumar en liðið fékk tvö mörk á sig í tapleik gegn Víkingi R.

,,Við erum að verjast mjög vel og fáum lítið af færum á okkur. Við höfum sjálfir mikla trú á að við getum unnið öll lið deildarinnar og sjálfstraustið skín af Leiknismönnum þessa dagana. Ég verð að taka það fram að mörkin tvö sem við erum búnir að fá á okkur eru úr víti og beint úr aukaspyrnu."

Þjálfarar og fyrirliðar í fyrstu deildinni spáðu Leikni sjöunda sæti í sumar en liðið hefur byrjað betur en flestir bjuggust við. Gott gengi kemur Halldóri þó ekki á óvart.

,,Nei þetta kemur mér ekki á óvart. Við vitum vel hvað við getum, þetta er bara byrjunin. Fyrir mót hefði ég glaður sætt mig við 12 stig eftir 5 leiki, en í dag hefði ég viljað meira. Ég er ósattur að hafa ekki fengið neitt úr leiknum við Víking," sagði Halldór en Leiknismenn eru stigi á eftir toppliði ÍR.

,,Það eru að sjálfsögðu viss vonbrigði að vera fyrir neðan ÍR en það er sem betur fer stutt í slaginn um Breiðholtið."

Eftir þessa góðu byrjun segir Halldór ljóst að Leiknismenn muni stefna á að vera í toppbaráttunni í sumar.

,,Við erum með sterkan hóp en hann er ekki breiður. Við munum klárlega stefna á baráttu í efri hlutanum."

,,Við höfum ekki verið að byrja deildina nógu vel undanfarin ár en það erum við loks að gera núna og við munum reyna að fylgja því eftir. En við höldum samt í markmiðið okkar sem er að einbeita sér bara að næsta leik og vinna hann."


Sigursteinn Gíslason er á sínu öðru ári sem þjálfari Leiknis og liði virðist vera á réttri leið undir hans stjórn.

,,Það er margt sem breyttist við komu hans. Það er meiri agi og þetta er allt orðið meira professional. Umgjörðin í kringum klúbbinn er mjög góð, það eru bjartir tímar í ghettoinu."

Það er skammt stórra högga á milli hjá Leikni en næsti leikur liðsins er á föstudagskvöldið.

,,Það er mjög gaman að sjá hvað margir eru að mæta á völlinn í 1.deildinni og vonandi heldur það áfram að aukast. Leiknir - Grótta á föstudaginn, allir á völlinn," sagði Halldór að lokum við Fótbolta.net.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner