Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 15. júní 2010 09:00
Hörður Snævar Jónsson
Leikm. umf. 1. deild: Þakka Gústa Púst fyrir lyftingaræfingarnar
Aron fagnar í leiknum gegn ÍR.
Aron fagnar í leiknum gegn ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson framherji Fjölnis átti frábæran leik er liðið vann ÍR á föstudaginn í 1. deild karla en hann skoraði tvívegis í leiknum. Fjölnir er enn taplaust í sumar og hefur verið á miklu skriði. Aron er leikmaður 6. umferðar í 1. deild karla.

Aron Jóhannsson
Aldur: 19 ára
Lið á HM: Suður Kórea
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Ji Sung Park
,,Já vissulega kemur þetta á óvart, við erum búnir að spila mjög vel og það hefði verið hægt að velja nánast hvern sem er úr liðinu," sagði Aron í samtali við Fótbolta.net.

ÍR var fyrir leikinn á toppi 1. deildar en Fjölnir náði að setja fjögur mörk á þá. Aron segist alltaf hafa haft trú á því að liðið gæti sigrað ÍR.

,,Já allan daginn, við erum með frábært lið og góða sóknarlínu, þegar færibandið fer í gang þá er erfitt að stoppa okkur."

Aron náði að skora aðeins eitt mark í fyrra en hefur á þessu tímabili skorað átta, fjögur í deild og fjögur í bikar.

,, Já maður var ekki beint iðinn við kolann í fyrra en ég er aðeins að bæta upp fyrir það núna. Ég vil aðalega þakka Gústa Púst (Aðstoðarþjalfara) fyrir allar skemmtilegu lyftingaræfingarnar, þær hafa greinilega hjálpað mér að nýta færin betur," sagði Aron en hvað er stefnan sett á mörg mörk?

,,Það er alltaf gaman að skora, ég stefni bara á að skora eins mörg og hægt er, það væri samt gaman að enda með fleiri heldur en hinir í deildinni."

Fjölnir var í Pepsi deildinni í fyrra en er stefnan sett á að fara strax aftur upp?

,,Við erum með mjög gott lið, markmið okkar er að vera í toppbaráttunni en deildin er mjög sterk. Á góðum degi getum við unnið öll lið en á slæmum degi gætum við tapað fyrir hvaða liði sem er. Við erum á flottu runni núna og ef við höldum áfram að spila eins og síðastliðna leiki þá gæti vel verið að við verðum í Pepsi deildinni 2011."

Byrjunarlið Fjölnis er nánast allt nýtt frá því í fyrra en margir sterkir póstar hurfu á braut.

,,Já það urðu miklar breytingar eftir síðasta sumar, en við erum ekki búnir að fá mikið af leikmönnum og aðalega keyrt þetta á ungum og uppöldnum strákum sem mér lýst bara mjög vel á."

,,Fyrr í vetur vorum við ekki alveg að finna réttu blönduna en rétt fyrir mót fórum við að ná rettu blöndunni og verðum betri og betri með hverjum leiknum,"
sagði Aron að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 4. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner