Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 22. júní 2010 18:15
Hörður Snævar Jónsson
Leikm umf 1.deild: Ákvað að spila eins og Bramble gegn Fjölni
Halldór fagnar sigrinum á Leikni.
Halldór fagnar sigrinum á Leikni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Halldór Arnarsson, varnarmaður ÍR, stóð sig mjög vel þegar liðið lagði Leikni R. 2-1 í grannaslag síðastliðið föstudagskvöld. Halldór er leikmaður sjöundu umferðar á Fótbolta.net.

Halldór Arnarsson
Aldur: 20 ára
Leikir með ÍR í 1.deild: 7
Önnur félög: Herfölge (Danmörk)
,,Já það verður að viðurkennast, maður veit náttúrulega aldrei hvernig leikmenn í öðrum leikjum standa sig, en ég gæti nefnt 10 leikmenn Íþróttafélagsins sem ættu þessa tilnefningu skilið. Gaman samt, neita því ekki," sagði Halldór við Fótbolta.net aðspurður hvort að tilnefningin hafi komið á óvart.

,, Sigurinn var með þeim sætari, alltaf gaman að vinna en það er bónus að vinna hið illa úr Efra-Breiðholti. Þetta var mikilvægt bæði til að missa þá ekki fram úr okkur og eins til að geta verið með kassann úti þegar maður spókar sig í Mjóddinni, kíkir á Braga Björns í Hólagarði eða skellir sér í Breiðholtslaugina."

,,Mig langar að nýta tækifærið og þakka okkar yndislegu stuðningsmönnum sem áttu sinn besta leik í mörg ár í Breiðholtsslagnum, voru yndislegir á allan hátt og kaffærðu óvininum með söng og tralli. Virkilega jákvætt og vonandi að þetta haldi bara áfram í næstu leikjum."


Halldór hefur leikið vel í vörn ÍR á tímabilinu en varnarleikur liðsins hefur batnað mikið síðan hann kom inn í liðið í vor.

,,Ég er ágætlega sáttur, en margt gæti verið betra. Ég ákvað til dæmis að spila einsog Titus Bramble á Newcastle-árunum gegn Fjölni fyrir ekki svo löngu, og það er aldrei til að stæra sig af. Annars erum við með einn Arnar Hallsson á bekknum og maður getur séð það á svipnum á honum þegar maður gengur af velli hvernig maður hefur staðið sig."

,,Hann er þessi týpa sem þú vilt ekki valda vonbrigðum og hefur hann gert góða hluti í að bæði skipuleggja varnarleik okkar og einnig að gíra menn upp í hvert einasta verkefni. Hugurinn leitar oft í tímamótamyndina Braveheart og það er mál manna að Arnarinn gefi William Wallace ekkert eftir."


ÍR-ingar eru í toppsætinu í fyrstu deildinni en telur Halldór að liðið geti komist upp í Pepsi-deildina?

,,Ég er nokkuð viss um að það séu engar reglur sem banni ÍR að spila í efstu deild á næsta tímabili, svo ef við endum í öðru af efstu tveimur sætunum þá spilum við í Pepsi-deildinni, ef við hins vegar endum neðar þá förum við ekki neitt."

Halldór lék með yngri flokkum ÍR en árið 2008 fór hann til danska félagsins Herfölge þar sem hann var þangað til í vor.

,,Ég komst út á reynslu í gegnum Styrktarsjóð ÍR, sem er starfræktur af frábærum mönnum sem vilja gera umhverfið fyrir unga ÍR-inga meira spennandi. Þegar út var komið var ég svo í 10 daga og fékk samningstilboð í kjölfarið."

,,Danska umhverfið er aðeins öðruvísi en hérna og ég datt inn í umhverfi sem var hárrétt fyrir mig á þessum tímapunkti. Ég lærði mikið úti sem ég mun geta nýtt í framtíðinni, svo ég tel mig vera sterkari leikmann en ég var áður en ég fór út."


Halldór mun þó ekki fara aftur út til Danmerkur eftir að tímabilinu lýkur í september.

,,Nei ég er alfluttur heim, svo að í september þá tekur bara við þetta yndislega undirbúningstímabil sem íslenskir fótboltamenn þekkja vel og dá og dýrka," sagði Halldór að lokum.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner