Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 28. júní 2010 19:00
Magnús Már Einarsson
Leikmaður 8.umferðar í 1.deild: Við breyttum sögunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Muamer Sadikovic var frábær í liði Þróttar í 4-2 sigrinum á ÍA í fyrradag. Muamer skoraði þrennu í leiknum og hann er leikmaður áttundu umferðarinnar á Fótbolta.net.

Muamer Sadikovic
Aldur: 23 ára
Leikir með Þrótti í 1.deild: 8 leikir og 3 mörk
Önnur félög á Íslandi: Hvöt
Lið á HM: Holland
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhald knattspyrnumaður: Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic
,,Ég var ánægður með leikinn, við spiluðum mjög vel," sagði Muamer, eða Mummi eins og hann er kallaður af Þrótturum, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Þróttur sigraði ÍA einnig í VISA-bikarnum í síðustu viku en einungis þrír dagar voru á milli leikjanna.

,,Ég held að Þróttur hafi aldrei unnið ÍA á útivelli fyrir þessa leiki þannig að við breyttum sögunni," sagði Muamer léttur í bragði.

Í fyrra skoraði Muamer sautján mörk í annarri deildinni með Hvöt. Hann hafði ekki náð að skora í fyrstu deildinni áður en kom að leiknum um helgina en hluti af ástæðunni er sú að hann hefur mikið leikið á miðjunni í sumar. Í fyrradag fékk hann hins vegar að spila í sinni stöðu í framlínunni.

,,Ég var ánægður með að fá að spila frammi eftir að hafa verið á miðjunni í síðustu fimm leikjum. Þjálfarinn (Páll Einarsson) setti mig fram og ég sannaði mig þar."

Þróttur hafði tapað fjórum leikjum í röð áður en kom að leiknum gegn ÍA en Muamer segir að stemningin í liðinu sé allt önnur núna.

,,Andrúmsloftið í hópnum er mun betra núna. Ég veit ekki hvað gerðist nákvæmlega í þessum fjórum leikjum sem við töpuðum, það er erfitt að útskýra það. Við erum með góða leikmenn en við spiluðum ekki eins og lið. Núna þekkjum við hvorn annan og þetta er mun betra. Nokkrir leikmenn hafa líka skipt um stöður á vellinum og það er gott."

Þróttur stefndi fyrir tímabilið á að vera í toppbaráttunni en eftir slaka byrjun er liðið í níunda sæti. Muamer veit þvi ekki hvort að markmiðið um að komast upp í Pepsi-deildina sé raunhæft í ár.

,,Ég veit ekki hvort það takist núna því við töpuðum fjórum leikjum. Ef við spilum samt eins vel og síðustu tveimur leikjum getum við farið upp því við höfum verið að spila mjög vel."

Muamer var frábær í liði Hvatar í fyrra en hann var meðal annars valinn í lið ársins í annarri deildinni. Hvöt samdi síðan við hann síðastliðið haust.

,,Ég lék vel á síðasta ári. Þróttur hringdi í mig, ég ræddi við stjórnarmennina og við gerðum samning. Þróttur er gott félag og ég er ánægur hjá Þrótti," sagði Muamer sem er sáttur á Íslandi.

,,Það er mjög gott að vera í Reykjavík. Ég kunni ekki vel við mig á Íslandi í fyrra, Blönduós er of lítill bær en það er betra að vera í Reykjavík."

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner