Viktor Örn Guðmundsson leikmaður FH sem er í láni hjá Víking er leikmaður 9. umferðar í 1. deild karla.
Viktor skoraði tvö og fiskaði viti er liðið vann ÍR í síðustu viku en umferðin kláraðist í gær með Þórs og KA.
Viktor skoraði tvö og fiskaði viti er liðið vann ÍR í síðustu viku en umferðin kláraðist í gær með Þórs og KA.
Aldur: 20 ára
Leikir með Víking í 1.deild: 6 leikir og 4 mörk
Lið á HM: England
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Guti Hernandez og Paul Scholes
,,Það var held ég daginn fyrir félagaskiptagluggan að Heimir (Guðjónsson) spurði mig hvort ég vildi fara á lán og spila meira og ég sló til og ákvað að fara og sé ekki eftir því, enda búið að ganga mjög vel," sagði Viktor en það kom honum ekki á óvart að hann var valinn leikmaður umferðarinnar.
,,Nei í rauninni ekki, ég átti alveg von á þessu enda varla annað hægt þegar maður á svona góðan leik."
,,Ég var mjög ánægður með leikinn, við byrjuðum af miklum krafti og kláruðum nánast leikinn eftir fyrsta korterið en þá var staðan 3-0. Við lögðumst kannski aðeins of mikið til baka eftir það en svo drepum við þá alveg í byrjun seinni hálfleiks með 4 markinu plús það að við höldum hreinu sem er mjög jákvætt fyrir liðið sem spilaði mjög vel í þessum leik."
Viktor hefur oftast spilað sem bakvörður en hjá Viking hefur hann spilað sem kantmaður og skorað mikið bæði í deild og bikar
,,Ég bjóst við því að spila í bakverðinum og þeir eru ekki þekktir fyrir að skora mikið en þetta hefur gengið svaka vel og vonandi halda mörkin áfram að raðast inn," sagði Viktor sem vonast til að komast inn í FH liðið á næstu leiktíð.
,,Samkvæmt samningnum fer ég til FH aftur eftir tímabilið og þá heldur baráttan um sæti í liðinu áfram en FH er með eitt besta lið á landinu og erfitt að komast í það en ég mun reyna mitt besta og berjast fyrir sæti í liðinu."
Víkingur er í toppbarátunni og stefna upp í Pepsi deildina.
,,Já ég tel að Víkingur sé með sterkasta hópinn í þessari deild. Við höfum mjög góða breidd sem skiptir auðvitað miklu yfir heilt tímabil. En já ég held að við náum okkar markmiðum og vinnum þessa deild og förum upp með stolti," sagði Viktor Örn að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)




