Kristján Finnbogason var magnaður í marki Gróttu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Þrótt síðastliðið föstudagskvöld. Kristján bjargaði oft mjög vel í marki Gróttu og hann er leikmaður 10.umferðar hér á Fóbolta.net.
Aldur: 39 ára
Fyrri félög: ÍA, KR, SK Lommel, Ayr United
Leikir með Gróttu: 33 leikir
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhald knattspyrnumaður: Pepe Reina og Lionel Messi
Grótta er með fimm stig í fyrstu deildinni en liðið ætlar að reyna að bæta stigum við gegn Njarðvík í kvöld.
,,Við höfum tapað langflestum leikjum með einu marki og mér finnst búa mun meira í liðinu en við höfum verið að gera."
,,Það eru góðir fótboltamenn í liðinu og við verðum að byrja í kvöld á að finna sigur á heimaveli til að halda okkur i deildinni. Við erum ekkert búnir að gefast upp, við höldum áfram fram í rauðan dauðann."
Gróttu hefur gengið illa á heimavelli í ár og liðið á ennþá eftir að krækja í sín fyrstu stig þar.
,,Það gekk vel þarna í fyrra. Við erum komnir upp um deild núna og það er kannski öðruvísi. Þessi fáu stig sem við höfum náð í hafa komið öll á útivelli, við höfum ekki náð í eitt einasta á heimavelli en það verður að byrja á því í kvöld."
,,Það má segja að þetta sé algjör úrslitaleikur fyrir okkur til að ná að hanga aftan í neðstu liðunum. Ef við náum ekki í þrjú stig í kvöld þá er búið að skilja okkur rækilega á eftir pakkanum. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur í kvöld."
Kristján er orðinn 39 ára gamall og aldurinn er farinn að segja sitt en hann hefur misst af nokkrum leikjum í sumar vegna meiðsla.
,,Ég er orðinn gamall og lúinn. Ég er búinn að missa af nokkrum leikjum í sumar og virðist ekki vera klár fyrir leikinn í kvöld."
,,Maður er orðinn líkamlegt úrhrak, maður er lengi að jafna sig eftir leiki. Ég á frekar von á því að þetta sé mitt síðasta tímabil án þess að ég gefi það formlega út."
Kristján lék sem framherji í lokaleik Gróttu í fyrra en hann hafði áður sagt að hann myndi enda ferilinn sem sóknarmaður.
,,Þetta var kjörið að slútta þessu í fyrra þar sem maður endaði í senternum þá eins og maður ætlaði sér alltaf. Ætli ég hafi ekki klúðrað því tækifæri með því að hætta ekki í fyrra," sagði Kristján léttur í bragði að lokum.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)


