Aron Jóhannsson skoraði þrennu er Fjölnir vann Leikni 4-3 á heimavelli í vikunni en mikil dramatík var í leiknum.
Aron er leikmaður 11. umferða í 1. deild hér á Fótbolta.net.
Aron er leikmaður 11. umferða í 1. deild hér á Fótbolta.net.
Aldur: 19 ára
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Ji Sung Park
Fjölnir lenti undir þegar stutt var eftir en Aron missti ekki trúna.
,,Nei ég missti nú aldrei trúna en ég áttaði mig alveg á því að það væri á brattan að sækja þegar við erum að tapa 2-3 og 5 mínutur eftir af leiknum. Ég vissi samt að við hefðum í okkur að koma til baka, við erum það sterkir að við erum ekkert að fara að brotna þótt við bognum aðeins."
Hann fór á vítapunktinn þegar stutt var eftir og fann fyrir stressi.
,,Ég verð að viðurkenna að það var smá fiðringur, en ég var búinn að skora 2 mörk í leiknum og var með mikið sjálfstraust og vissi allan tímann að ég væri að fara að skora," sagði Aron sem hefur skorað meira í sumar en í fyrra.
,,Ég hef verið að spila aðeins stærra hlutverk í liðinu í sumar heldur en í fyrra. Síðasta tímabil var mitt fyrsta alvöru tímabil í meistaraflokk og ég hefði svo sannarlega getað byrjað sumarið betur, en það var ákveðin þúfa í grasinu á KR velli sem var ekki á sama máli og ég. En núna er liðið að spila vel og ég er fullur sjálfstrausts."
,,Ég er svo sem ekkert kominn með neina ákveðna tölu, mitt helsta markmið er að skora fleiri mörk heldur en Pétur Markan, það er auðvelt einsog er en þegar hann dettur í gírinn, þá þarf ég að vera vakandi."
Hann telur nægilgea mikið búa í liðinu til að fara upp.
,,Algjörlega, við erum með eitt best mannaða liðið í deildinni, samansafn af nokkrum reynsluboltum og ungum og hæfileikaríkum strákum. Ef við mætum til leiks með það eitt í huga að berjast fyrir hvorn annan og að spila sem ein heild þá getum við unnið öll liðin í þessari deild, liðin í fyrstu 5 sætunum eru öll mjög svipuð það er hugarfarið og dagsformið sem skilur á milli."
,,Það er gífurlega góð stemming í hópnum. Það eru nokkrar blaðurskjóður í liðinu sem passa vel uppá að það verði sjaldan þögn í klefanum," sagði Aron að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)



