Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 21. júlí 2010 09:00
Hörður Snævar Jónsson
Leikmaður umf. í 1. deild: Ekki besta víti sem sést hefur á vellinum
Aron í leiknum gegn Þór.
Aron í leiknum gegn Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron fagnar í sumar.
Aron fagnar í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Aron Jóhannsson leikmaður Fjölnis hefur slegið í gegn í sumar og skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Þór á laugardag.

Þetta er önnu umferðin í röð sem Aron er maður umferðarinnar og í þriðja sinn í sumar hér á Fótbolta.net.

Aron Jóhannsson
Aldur: 19 ára
Lið á Englandi: Manchester United
Uppháhald knattspyrnumaður: Ji Sung Park
,,Já þetta kemur virkilega á óvart, að fá þessa viðurkenningu tvær umferðar í röð kom mér virkilega á óvart," sagði Aron í samtali við Fótbolta.net.

,,Mér fannst við heilt yfir vera sterkari í leiknum. Gáfum nánast engin færi á okkur og vorum með leikinn í höndunum allan tíman. Við vorum að koma okkur í ákjósanleg færi í fyrri hálfleik, Viðar átti skalla í slá og Pétur skot í slá, vorum óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik. Við komum síðan sterkir inn í seinnihálfleik og fáum síðan víti og komumst í 1-0 þá fannst mér við vera búnir að landa 3 stigum."

Fyrra mark Aron kom úr vítaspyrnu sem var ansi tæp á því að vera varinn

,,Já, þetta var ekki besta víti sem sést hefur á vellinum en inn fór hann þó. Ég sá að markmaðurinn var búinn að skutla sér í hægra hornið þannig ég ætlaði bara að leggja hann á mitt markið, en markmaðurinn var eitthvað tregur við að skutla sér og skildi lappirnar eftir í miðju markinu og hefði hæglega getað varið þetta en þá hefði ég bara tekið frákastið og klárað dæmið."

Aron hefur verið frábær í sumar og í 15 leikjum í deild og bikar er hann með 13 mörk. Hverju þakkar hann þennan góða árangur?

,,Klárlega öllu Fjölnis liðinu. Við erum búnir að setja saman gríðarlega flottan pakka í Voginum. Við erum búnir að spila mjög vel saman sem heild og þótt að það sé ég sem er valinn þá á allt liðið þessa viðurkenningu."

Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Víkingi sem er á toppi deildarinnar.

,,Það getur ekkert lið í þessari deild mætt á Vikingsvöll og ætlast til að fá 3 stig. Þeir eru með gríðarlega sterkt lið og góða breidd í liðinu. Við þurfum að eiga topp leik til að fá eitthvað útúr þessu. Við forum að sjálfsögðu inni hvern leik til að vinna hann en þessi leikur verður mjög erfiður, ég hvet fólk til að mæta því þetta verður hörkuleikur."

,,Við gerðum okkur markmið fyrir tímabilið að vera með í toppbaráttunni og við höldum okkur bara við það eins og er,"
sagði Aron en ef Fjölnir mistekst að fara upp ætlar þann þá að reyna að komast að í Pepsi deildinni?

,,Eins og staðan er í dag þá er ég samningsbundinn Fjölni og mér líður bara mjög vel hérna í Voginum," sagði Aron að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner
banner